En hver er hin raunverulega skilgreining á The cuffing season?
Samkvæmt Urban dictonary er skilgreiningin þessi:
Yfir haust og vetrarmánuðina finnur fólk sem að öllu jöfnu kýs frekar að vera einhleypt aukna þrá í að bindast einhverjum, fara í samband. Kaldara veður og meiri innivera verður oft til þess að fólk finnur fyrir einmanaleika og þar af leiðandi eykst þörfin í það að komast í nýtt samband og tengjast annari manneskju.
Yfir sumartímann virðist fólki þó líða betur með það að vera einhleypt. Veðrið er betra, ferðlög og mannfögnuðir taka yfir og félagslífið yfirleitt í blóma. Sagt er að Handjárna-tímabilið byrji fyrst 1. ágúst og standi til 14. febrúar (Valentínusardag).
Á samfélagsmiðlum hefur mikið færst í aukana að fólk vísi í þetta tímabil og hefur til gamans svokallað dagatal Handjárna-tímabilsins gengið manna á milli þar sem mánuðurnir eru skilgreindir eftir ákveðnum stigum.
Í ágúst fer fólk að horfa í kringum sig og skoða hverjir eru einhleypir og gætu mögulega komið til greina.
2. Sigti-tímabilið (Drafting) - 1. - 30. september.
Leitin þrengist of fólk byrjar að sigta úr þá einstaklinga sem vekja mestan áhuga.
3. Reynslu-tímabilið (Tryouts) - 1. - 31. október.
Fyrstu stefnumótin eða hittingar. Á þessu tímabili lætur fólk á það reyna að hittast og finna hvort að það sé eitthvað til staðar. Sumir hitta nokkra á meðan aðrir prófa nokkur stefnumót með einum aðila.
4. Fortímabilið (PreSeason) - 1. - 30. nóvember.
Nú er fólk búið að finna einhvern einn og yfirleitt einkennist þetta tímabil af spennu og tilhlökkun. Stefnumótin verða fleiri og kynnin nánari.
5. Handjárna-tímabilið (Cuffing season) - 1. desember - 15. janúar.
Það er svo ekki fyrr en í desember að handjárnatímabilið verður raunverulegt. Þetta er mánuðurinn sem fólk hefur hvað sterkustu löngunina í að binda sig. Þráin verður hvað mest í að eiga einhvern til þess að deila með þessum oft frekar fjölskyldumiðaða mánuði.
6. Úrslita-tímabilið (Playoffs) - 16. janúar - 13. febrúar.
Um miðjan janúar tekur hversdagsleikinn aftur við og margir hverjir komnir yfir mestu spennuna í sambandinu. Þá reynir meira á það hvernig fólk passar saman.
7. Lokaúrslitin (The Championship game) - 14. febrúar.
VALENTÍNUSARDAGURINN!
Ef sambandið kemst í gegnum miðjan febrúar er sagt að þú sért hólpinn. Sambandið komst áfram í næstu lotu.
Fyrir áhugasama er hægt að nálgast ítarlegri umfjöllun Guardian um The cuffing season HÉR