Það var Yannick Carrasco sem skoraði sigurmark Atlético Madrid sem steig stórt skref í átt að sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta keppnistímabili með þessum sigri.
Eftir sigurinn er Atlético Madrid með 64 stig í fjórða sæti deildarinnar og hefur sex stiga forskot á Real Betis sem er sæti neðar. Efstu fjögur liðin fara í Meistaradeildina næsta vetur.
Leikmenn Real Madrid voru hins vegar slegnir niður á jörðina eftir að hafa tryggt sér spænska meistaratitilinn og sæti í úrsltialeik Meistaradeildarinnar með ævintýralegum sigri gegn Manchester City siðustu vikuna.