Fleiri kosið utan kjörfundar í Reykjavík en fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018 Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Heimir Már Pétursson skrifa 3. maí 2022 19:01 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á höfuðborgarsvæðinu fyrir sveitarstjórnarkosningar fer fram í verslunarmiðstöðinni Holtagörðum. Vísir/Vilhelm Fleiri hafa kosið utan kjörfundar í Reykjavík nú en fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018, þótt tíminn til að kjósa utan kjörfundar sé mun styttri nú en þá.
Ástæðan er sú að ný kosningalög kveða á um að öll framboð séu komin fram þegar utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst en þannig var það ekki áður. „Það sem af er degi hafa 421 kosið hjá okkur hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og frá því við opnuðum eru 2800 búnir að kjósa og á landinu öllu eru 4063, sem hafa kosið frá opnun,“ sagði Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Fleiri hafa nú kosið á höfuðborgarsvæðinu einu en á sama tíma á landinu öllu árið 2018. „Já, 2018 voru 2163 sem höfðu kosið,“ segir hún. Hún segir meiri utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Alþingiskosningum en í sveitarstjórnarkosningum. „Sveitarstjórnarkosningarnar eru öðruvísi, þær eru nær samfélaginu, þannig að fólk vill kannski mæta á kjörstað á kjördag.“ Opið verður alla daga vikunnar fyrir utankjörfundaratkvæðagreiðslu á höfuðborgarsvæðinu í verslunarmiðstöð Holtagarða frá klukkan 10 á morgnanna til klukkan 22 á kvöldin. Á kjördag verður svo opið frá klukkan 10 til 17 fyrir þá sem eru á kjörskrá annars staðar en á höfuðborgarsvæðinu.
Sveitarstjórnarkosningar 2022 Reykjavík Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira