Davíð í Unity og Nýsköpunarvika efna til loftslagsviðburðarins „Ok, bye“ í Hörpu Atli Ísleifsson skrifar 2. maí 2022 13:18 Davíð Helgason, frumkvöðull og fjárfestir, segir að flestar af þeim lausnum sem við þurfum til þess að leysa loftslagsvandann séu til nú þegar til. Þó þurfi að finna þær, sanna þær, besta þær, fjárfesta í þeim og skala þær upp. Aðsend Davíð Helgason, fjárfestir og einn stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Unity Technologies, og Nýsköpunarvika (Iceland Innovation Week) hafa efnt til sérstaks loftslagsviðburðar í Hörpu þann 18. maí næstkomandi. Listamenn, frumkvöðlar og nokkrir helstu loftslagsfjárfestar heims munu þar koma fram en ætlunin er að skapa samtal og vekja athygli á Íslandi sem miðpunkti í loftslagsmálaumræðunni.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Nafn viðburðarins „Ok, bye“ vísar í jökulinn Ok sem var fyrsti íslenski jökullinn til að hverfa árið 2014. „Minnisvarði um jökulinn var settur upp og minningarathöfn haldin sem vakti mikla athygli út um allan heim. Jöklar eru ein skýrasta vísbendingin um hnattræna hlýnun hafs og andrúmslofts en þeir rýrna nú hratt um allan heim og vara við hvert stefnir. Ok, bye er ætlað að vekja athygli á Íslandi sem miðpunkti í loftslags umræðunni og laða til landsins fleiri græn tækifæri á stærri skala en þekkst hefur. Ætlunin er að skoða þær breytingar sem framundan eru frá uppbyggilegu sjónarhorni og varpa ljósi á lausnirnar og frumkvöðlana sem eru í raun að breyta heiminum. Þannig gefst tækifæri til að afla sér sérfræðiþekkingar en jafnframt tengjast frumkvöðlum, fjárfestum og listafólki allstaðar að úr heiminum. Viðburðurinn er ekki hefðbundin ráðstefna í þeim skilningi heldur frekar gjörningur, þar sem fyrirlestrar og umræður tvinnast saman við listrænar uppákomur, tónlist og sjónræna upplifun. Þennan eina dag verður Silfurbergi í Hörpu breytt í íslenskt sumar, staðsett mitt á milli fortíðar og framtíðar,“ segir í tilkynningunni. Alls staðar efst á baugi Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, framkvæmdastjóra Iceland Innovation Week, segist ótrúlega spennt að taka höndum saman með Davíð Helgasyni og hans teymi og skapa þennan sérstaka viðburð á hátíðinni. „Loftslagsmálin eru allstaðar efst á baugi og vandamálin sem við stöndum frammi fyrir eru stór og aðkallandi. Á Ok, bye er ætlunin hins vegar að einblína á lausnirnar og hvað við þurfum að gera til að koma okkur yfir markið þegar kemur að því að standa við skuldbindingar Parísarsáttmálans,“ er haft eftir Melkorku Sigríði í tilkynningunni, en Nýsköpunarvikan fer fram dagana 16. -20. maí. Meðal þeirra sem koma fram eru Davíð Helgason frumkvöðull og fjárfestir, Ari Helgason loftslagsfjárfestir, Edda Sif Pind Aradóttir framkvæmdastjóri Carbfix, Lindsey Higgins loftslagsráðgjafi Pale blue dot í Svíþjóð, Marty Odlin framkvæmdastjóri og stofnandi Running Tide, Salka Sigurðardóttir, loftslagsráðgjafi hjá bresku ríkisstjórninni og Sarah Sclarsic meðstofnandi Voyager fjárfestingasjóðsins í Bandaríkjunum. Meðal þeirra listamanna sem koma fram verða svo Hildur, Una Torfa, Teitur Magnússon, Kvennakórinn Katla, Guðmundur Felixson, Milkywhale og fleiri. Þurfum að besta lausnirnar Haft er eftir Davíð Helgasyni að flestar af þeim lausnum sem við þurfum til þess að leysa loftslagsvandann séu til nú þegar til. Þó þurfi að finna þær, sanna þær, besta þær, fjárfesta í þeim og skala þær upp. „Á viðburðinum koma saman fjárfestar, frumkvöðlar, vísindafólk, listafólk, pólitíkusar og aðrir lykilaðilar í loftslagsgeiranum og ég hlakka til að sjá hreyfinguna í kringum loftslagsmál vaxa enn frekar,“ segir Davíð.
Loftslagsmál Nýsköpun Harpa Mest lesið Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Viðskipti innlent Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Sjá meira