Megn óánægja sé með Sjúkratryggingar Íslands meðal lækna Árni Sæberg skrifar 30. apríl 2022 14:40 Köldu andar milli Sjúkratrygginga Íslands og Læknafélags reykjavíkur um þessar mundir. Vísir/Vilhelm Formaður Læknafélags Reykjavíkur segir mikla óánægju vera meðal félagsmanna með aðgerðir Sjúkratrygginga Íslands. Hann segir stofnunina senda tilhæfulausar endurkröfur áður en leyst er úr ágreiningi um læknisþjónustu.
Guðmundur Örn Guðmundsson, formaður Læknafélags Reykjavíkur, segir Sjúkratryggingar Íslands hafa farið mjög harkalega fram í endurkröfum sínum á hendur læknum og stofum undanfarið. Greint var frá því í gær að Sjúkratryggingar hafi sent frá sér tilkynningu þess efnis að sjúklingar sem njóta greiðsluþátttöku stofnunarinnar eiga ekki að bera fjárhagslegt tjón af endurkröfum sem stofnunin kann að gera á veitendur heilbrigðisþjónustu vegna óviðeigandi reikningsgerðar. Ástæða tilkynningarinnar er sú að tiltekinn veitandi læknisþjónustu hefur sent skjólstæðingum sínum bréf þar sem þeim er tilkynnt að þeim verði sendur reikningur fyrir þjónustu, ef til þess kemur að möguleg endurkrafa SÍ nái fram að ganga. Guðmundur Örn segist ekki geta tjáð sig um það tiltekna mál en hann segir í samtali við fréttastofu að mikillar óánægju gæti innan Læknafélags Reykjavíkur með aðferðir SÍ. Enginn farvegur fyrir ágreiningsmál Hann segir að allt frá því að fyrst var samið við lækna um framkvæmd læknisþjónustu hafi verið til staðar vettvangur til að greiða úr ágreiningsmálum sem varða greiðslu fyrir þjónustu. Þegar samningur milli Sjúkratrygginga og Læknafélags Reykjavíkur rann út árið 2018 hafi sá vettvangur fallið á brott og nú sé því engin leið fyrir lækna og Sjúkratryggingar Íslands til að greiða úr ágreiningi án þess að mál fari í lögfræðilegt ferli. „Þannig að slíkur ágreiningur núna hann er hefur ekki verið ræddur eða leiddur til lykta heldur hafa Sjúkratryggingar einhliða gert endurkröfur á læknana án þess að efnisleg umfjöllun um ágreininginn fari fram og þetta er læknafélagið mjög ósátt við,“ segir Guðmundur Örn. Hafi þurft að hopa með fjölda mála Hann segir að ágreiningur geti auðvitað komið upp um það hvaða læknisþjónusta falli undir samning SÍ við lækna. Þó sé ótækt að stofnunin sendi endurkröfur áður en reynt er að greiða úr ágreiningi eftir venjulegum leiðum. Dæmi um það séu nýleg mál SÁÁ og Heilsustofnunarinnar í Hveragerði. SÍ hafi sent stofnunum himinháar endurkröfur þó mál þeirra séu enn í lögfræðilegu ferli. Guðmundur segir að í öllum slíkum málum sé um álitamál og túlkunaratriði að ræða. Læknar séu ekki að stunda kerfisbundnar falsanir með útgáfu tilhæfulausra reikninga. „Í stórum hluta þeirra ágreiningsmála sem hafa komið upp á yfirborðið hafa kröfur Sjúkratrygginga ekki í verið byggðar á réttum grunni í raun og veru og þeir hafa þurft að hopa með fullt af sínum málum þegar þau hafa farið í lögfræðilega meðferð,“ segir hann. Breytt mat orsakar fleiri endurkröfur Ein þeirra ástæðna sem orsakar aukinn fjölda endurkrafna af hálfu SÍ sé breytt aðferð við mat á því hvað fellur innan samninga SÍ við lækna. Hér áður fyrr hafi hver liður í heilbrigðisþjónustu verið aðskilinn og greitt fyrir hvern hluta sérstaklega. Nú hafi stofnunin hins vegar tekið upp á því að meta heilbrigðisþjónustu sem pakkameðferðir, líkt og tíðkast víða erlendis. Það valdi því að ef einn liður þjónustunnar fellur utan samnings fáist hún ekki greidd að neinu leyti. Þannig geti það gerst að SÍ taki ekki þátt í kostnaði skoðunnar, blóðprufu og röntgenmyndatöku sjúklings sem endar í aðgerð sem fellur utan samnings. „Okkur hefur ekki þótt boðlegt hvernig þeir eru að gera þetta,“ segir Guðmundur Örn að lokum.
Heilbrigðismál Kæra Sjúkratrygginga vegna starfshátta SÁÁ Sjúkratryggingar Tengdar fréttir Meintir tilhæfulausir reikningar SÁÁ metnir saknæmir Svo virðist sem SÁÁ hafi reynt að beita Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) stórfelldum blekkingum og undanbrögðum vegna tilhæfulausa reikninga sem samtökin sendu SÍ. 17. janúar 2022 18:27 „Heilsustofnun hefur ekkert að fela“ Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunarinnar í Hveragerði segir stofnunina ekkert hafa að fela eftir að Kjarninn greindi frá úttekt eftirlitsdeildar Sjúkratrygginga Íslands, þar sem fram kom að Náttúrulækningafélag Íslands, eigandi stofnunarinnar, hefði með ólögmætum hætti tekið um 600 milljónir úr starfsemi Heilsustofnunarinnar. Þórir segir hverri einustu krónu hafa verið veitt til að þjónusta sjúklinga í samræmi við þjónustusamning. 6. janúar 2022 14:59 600 milljóna ólögmæt úttekt úr rekstri Heilsustofnunarinnar í Hveragerði Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ), eigandi Heilsustofnunarinnar í Hveragerði, tók um 600 milljónir króna út úr stofnuninni á fimmtán árum með ólögmætum hætti. Þetta er niðurstaða úttektar eftirlitsdeildar Sjúkratrygginga Íslands á Heilsutofnuninni sem Kjarninn birtir ítarlega umfjöllun um í dag. 6. janúar 2022 12:54 Mest lesið Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Innlent Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ Innlent Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti Innlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Fleiri fréttir „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn „Hjákátlegt“ sé að ræða verð á kaffibollum í Búdapest Stungan leiddi til skurðar Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Áfram Ísland Beint streymi frá opnum fundi Já til að sjá Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Sjá meira
Meintir tilhæfulausir reikningar SÁÁ metnir saknæmir Svo virðist sem SÁÁ hafi reynt að beita Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) stórfelldum blekkingum og undanbrögðum vegna tilhæfulausa reikninga sem samtökin sendu SÍ. 17. janúar 2022 18:27
„Heilsustofnun hefur ekkert að fela“ Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunarinnar í Hveragerði segir stofnunina ekkert hafa að fela eftir að Kjarninn greindi frá úttekt eftirlitsdeildar Sjúkratrygginga Íslands, þar sem fram kom að Náttúrulækningafélag Íslands, eigandi stofnunarinnar, hefði með ólögmætum hætti tekið um 600 milljónir úr starfsemi Heilsustofnunarinnar. Þórir segir hverri einustu krónu hafa verið veitt til að þjónusta sjúklinga í samræmi við þjónustusamning. 6. janúar 2022 14:59
600 milljóna ólögmæt úttekt úr rekstri Heilsustofnunarinnar í Hveragerði Náttúrulækningafélag Íslands (NLFÍ), eigandi Heilsustofnunarinnar í Hveragerði, tók um 600 milljónir króna út úr stofnuninni á fimmtán árum með ólögmætum hætti. Þetta er niðurstaða úttektar eftirlitsdeildar Sjúkratrygginga Íslands á Heilsutofnuninni sem Kjarninn birtir ítarlega umfjöllun um í dag. 6. janúar 2022 12:54