Innlent

Á­rekstur á Reykja­nes­braut

Eiður Þór Árnason skrifar
Nokkrar umferðartafir voru um tíma á Reykjanesbraut.
Nokkrar umferðartafir voru um tíma á Reykjanesbraut. aðsend

Tilkynning barst um tveggja bíla árekstur á Reykjanesbraut nærri Straumsvík á fimmta tímanum í dag og var einn minniháttar slasaður fluttur á slysadeild til athugunar. Sjúkrabíll, lögregla og dælubíll fóru á staðinn og olli slysið nokkrum umferðartöfum. 

Búið er að fjarlægja ökutækin af vettvangi og greiða fyrir umferð um Reykjanesbraut á ný, að sögn varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Um minniháttar slys hafi verið að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×