Lífið

Ótrúleg breyting á eldhúsi og baðherbergi Rögnu Lóu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ragna Lóa er með einstaklega skemmtilegan smekk.
Ragna Lóa er með einstaklega skemmtilegan smekk.

Ljósmyndarinn Kári Sverrisson og innanhússarkitektinn Ragnar Sigurðsson fóru af stað með nýja þætti á Stöð 2 í gærkvöldi sem bera heitið Bætt um betur en í þáttunum taka þeir ýmiskonar rými í gegn og gera fallegri.

Inga Lind Karlsdóttir er einnig með þeim í þáttunum og er hún þáttastjórnandi. Í þættinum í gær var kíkt við hjá Rögnu Lóu Stefánsdóttur sem býr í fallegri blokkaríbúð á efstu hæð. 

Hún er litríkur persónuleiki og vildi fá aðstoð sérfræðinga þegar kemur að því að endurbæta eldhúsið og baðherbergið.

Þeir Kári og Ragnar tóku sannarlega til hendinni og breyttu þessum rýmum og var niðurstaðan einstaklega falleg eins og sjá má hér að neðan. Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni á Stöð 2+.

Klippa: Ótrúleg breyting á eldhúsi og baðherbergi Rögnu Lóu





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.