Ómar Ingi aðeins annar sem verður markakóngur þýsku deildarinnar og EM Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. janúar 2022 14:31 Ómar Ingi Magnússon fagnar einu 59 marka sinna á EM. getty/Kolektiff Images Á innan við einu ári varð Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður í handbolta, markakóngur þýsku úrvalsdeildarinnar og Evrópumótsins.
Ómar Ingi skoraði 59 mörk og var langmarkahæstur á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu sem lauk í gær. Hann skoraði tólf mörkum meira en Daninn Mikkel Hansen. Á síðasta tímabili varð Ómar Ingi markakóngur þýsku úrvalsdeildarinnar þegar hann skoraði 274 mörk fyrir Magdeburg. Þá varð hann næstmarkahæsti leikmaður EHF-bikarsins sem Magdeburg vann. Ómar Ingi er aðeins annar leikmaðurinn í sögunni sem nær því að vera markakóngur þýsku úrvalsdeildarinnar og EM. Hinn er Daninn Lars Christiansen. Players who have been both top scorer of the European Championship and the Bundesliga:- Lars Christiansen - Omar Ingi Magnusson #handball #ehfeuro2022— Rasmus Boysen (@RasmusBoysen92) January 30, 2022 Christiansen varð tvívegis markahæstur í þýsku úrvalsdeildinni, 2003 og 2005. Hann lék með Flensburg á árunum 1996-2010 og varð þýskur meistari með liðinu 2004, bikarmeistari 2003, 2004 og 2005, vann EHF-bikarinn 1997 og Evrópukeppni bikarhafa 2001. Christiansen varð einnig markakóngur EM 2008 þar sem Danir stóðu uppi sem sigurvegarar. Hann skoraði 44 mörk líkt og Nikola Karabatic og Ivano Balic. Christiansen varð einnig Evrópumeistari með danska liðinu 2012, þá á fertugasta aldursári. Christiansen er bæði leikja- og markahæstur í sögu danska landsliðsins.
EM karla í handbolta 2022 Þýski handboltinn Mest lesið Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Golf Finnst það sárt að mæta ekki skilningi eftir barnsburð Sport Fá bætur eftir að hafa villst vegna forystubílsins Sport Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Enski boltinn HM-draumar fleiri þjóða í uppnámi vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum Fótbolti Þjálfari Lakers gerir lítið úr rifrildinu við Doncic Körfubolti Segir fulla innistæðu fyrir reiði Slot við leikmenn Enski boltinn „Það var í raun ekkert merkilegt, ég var ekkert að æsa mig“ Sport Sjáðu hælspyrnuna sem særði City, Dana klára United og þrennu Joao Pedro Enski boltinn Joao Pedro sá um svakalegan viðsnúning Enski boltinn Fleiri fréttir Færeyingar unnu sterkan varnarsigur gegn Portúgal „Ógeðslega gaman og ég er ógeðslega ánægð með allar“ „Að vera í þessum íþróttum er stanslaus þjáning“ Engin bikarþynnka hjá Haukum „Það var engin hætta“ Uppgjörið: Ísland - Svartfjallaland 28-27 | Fyrstu stigin komu gegn toppliðinu Norðmenn skipta út landsliðsþjálfaranum sínum „Mér finnst við eiga mikið inni“ Átta ára hark á enda „Við ætlum að spóla upp þessa brekku“ Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Einar Bragi öflugur í mikilvægum Evrópusigri Elliði í liði umferðarinnar eftir mörkin níu gegn Kiel Fleiri breytingar á landsliðinu: Alexandra kemur inn fyrir Ölfu „Leiðinleg tímasetning á þessum meiðslum“ Sigurinn dæmdur af Hauki og félögum því undirskrift vantaði Sonja Lind inn í hópinn fyrir barnshafandi Þóreyju Önnu Skellur fyrir bankabók HSÍ Frábær frammistaða Hauks dugði skammt Sigur hjá Ými en dýrt tap hjá Blæ Sigvaldi á leið í faðm Guðjóns Vals eða Heiðmars? Myndasyrpa: Haukar fögnuðu á heimavelli „Þetta er súrrealísk tilfinning“ „Fyrst og fremst stoltur af leikmönnum liðsins“ „Rætt á fyrsta fundi að stefnt væri að titlum“ Elliði markahæstur í frábærum sigri Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Flautumark tryggði Íslendingaliðinu sigur „Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“ „Algjör rússibani“ Sjá meira