Innlent

Telja að eldurinn hafi kviknað út frá fram­kvæmdum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Viktor Örn Ásgeirsson skrifa
Slökkvilið að störfum.
Slökkvilið að störfum. Vísir/Egill

Eldur kviknaði í þaki í íbúðarhúsi á Framnesvegi í Vesturbæ Reykjavíkur á þriðja tímanum í dag. Búið er að ráða niðurlögum eldsins en slökkvilið er enn á staðnum. 

Talsverður viðbúnaður var við Framnesveg og voru slökkviliðsmenn  komnir upp á þak hússins en reyk lagði frá því. Einhver eldur sást í þakinu en reykurinn var fyrirferðarmeiri. 

Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út. Aðeins einn er enn á staðnum. Slökkviliðsmenn þurftu að rífa upp hluta þaksins til að komast að eldinum, sem hafði komist á milli þilja. 

Að sögn slökkviliðs er grunur um að eldurinn hafi kviknað út frá framkvæmdum en verið var að logsjóða þakið á húsinu. Mikið tjón sé á efstu hæð hússins, bæði vegna reyksins sem barst inn í húsið og vatnsskemmdir en slökkvilið þurfti að rífa upp þakið til að komast að eld sem komist hafði á milli þilja. Betur hafi þó farið en á horfðist. 

Slökkviliðið er komið að Framnesvegi og farið að meta aðstæður.Ársæll Sigurlaugar Níelsson
Talsverður viðbúnaður er á staðnum.Ársæll Sigurlaugar Níelsson
Slökkviliðsmenn fóru upp á þak hússins og virðast aðgerðir einskorðaðar við það.Vísir/Viktor

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×