Atvinnuleysi staðið í stað en spá aukningu í janúar Eiður Þór Árnason skrifar 11. janúar 2022 12:15 Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í desember. Vísir/Vilhelm Skráð atvinnuleysi var 4,9% í desember og var óbreytt frá nóvember. Alls fjölgaði atvinnulausum að meðaltali um 74 frá nóvembermánuði.
Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Stofnunin spáir því að atvinnuleysi muni aukast í janúar og verða á bilinu 5,1% til 5,3%. Alls voru 4.289 erlendir atvinnuleitendur án atvinnu í lok desember og fjölgaði um 114 frá fyrri mánuði. Þessi fjöldi samsvarar um 11,6% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara. Hlutfall erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá var 42,2% í desember og hefur aukist úr um 40% frá sumri 2021. Í desember 2020 var þetta hlutfall 40,9% allra atvinnulausra, að því er fram kemur í tölum Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun Langtímaatvinnulausum fækkar Atvinnulausir voru alls 10.161 í lok desember, 5.756 karlar og 4.405 konur. Atvinnulausum körlum fjölgaði um 37 frá nóvemberlokum en atvinnulausum konum fækkaði um 31. Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum eða 9,3%. Þar fækkaði atvinnulausum um 18 frá fyrri mánuði. Næst mest var atvinnuleysið 5,0% á höfuðborgarsvæðinu en þar minnkaði það úr 5,1% frá fyrri mánuði. Á landsbyggðinni jókst hins vegar atvinnuleysið um 0,2 prósentustig og var 4,8% í desember. Alls höfðu 3.802 atvinnuleitendur verið án atvinnu í meira en tólf mánuði í lok desember og fækkaði um 281 frá nóvember. Hefur þeim fækkað um 411 frá því í desember 2020, að því er fram kemur í tölum Vinnumálastofnunar. Þeim sem hafa verið atvinnulausir í sex til tólf mánuði fækkaði talsvert frá nóvember eða um 156 og voru 1.651 í lok desember en 1.807 í lok nóvember. Í desember 2020 var þessi fjöldi 6.661.
Vinnumarkaður Tengdar fréttir Atvinnuleysi stendur í stað Skráð atvinnuleysi mældist 4,9% í nóvember og var óbreytt frá því í október. Alls fækkaði atvinnulausum að meðaltali um 78 frá októbermánuði. 10. desember 2021 12:07 Ein hópuppsögn í nóvember Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsögn í nóvember þar sem fjórtán starfsmönnum var sagt upp störfum í sérfræði- tækni- og vísindalegri starfsemi. Uppsagnirnar taka flestar gildi á tímabilinu janúar til apríl 2022. 2. desember 2021 12:09 Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Viðskipti innlent Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Neytendur Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sjá meira
Atvinnuleysi stendur í stað Skráð atvinnuleysi mældist 4,9% í nóvember og var óbreytt frá því í október. Alls fækkaði atvinnulausum að meðaltali um 78 frá októbermánuði. 10. desember 2021 12:07
Ein hópuppsögn í nóvember Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsögn í nóvember þar sem fjórtán starfsmönnum var sagt upp störfum í sérfræði- tækni- og vísindalegri starfsemi. Uppsagnirnar taka flestar gildi á tímabilinu janúar til apríl 2022. 2. desember 2021 12:09