Eyjamaðurinn verður lengur hjá Guðjóni Val Sindri Sverrisson skrifar 16. desember 2021 15:15 Elliði Snær Viðarsson og Austurríkismaðurinn Alexander Hermann sem mun yfirgefa Gummersbach eftir leiktíðina. vfl-gummersbach.de Línu- og landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson hefur framlengt samning sinn við þýska handknattleiksfélagið Gummersbach.
Elliði var með samning við félagið sem renna átti út næsta sumar en hefur nú samþykkt að spila áfram með liðinu, og undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, að minnsta kosti fram á sumarið 2023. „Við erum svo glöð að þú munir halda áfram hjá okkur og að við munum fá að upplifa margar fleiri frábærar stundir með þér Edi!“ segir í tilkynningu frá Gummersbach. Eins og staðan er núna er því útlit fyrir að Elliði spili með Gummersbach í efstu deild á næstu leiktíð en liðið er efst í B-deildinni með 26 stig eftir 16 leiki, þremur stigum á undan Eintracht Hagen og fjórum á undan Nordhorn, en tvö efstu liðin komast upp. Elliði, sem er 23 ára Eyjamaður, kom til Gummersbach frá ÍBV í ágúst í fyrra og var einn af fyrstu mönnunum sem Guðjón Valur fékk til félagsins. Hann var í leikmannahópi ÍBV sem varð þrefaldur meistari árið 2018 og kvaddi félagið sem bikarmeistari. Elliði fór á sitt fyrsta stórmót á HM í Egyptalandi í byrjun þessa árs og er í 35 manna hópnum sem Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari mun velja úr fyrir EM í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar.
Þýski handboltinn Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Mark tekið af Vinicius og fékk rautt spjald í staðinn Fótbolti „Vonsviknir að ná ekki að nýta yfirburðina“ Fótbolti Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn Fleiri fréttir Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Sjá meira