Juventus virtist vera að komast á beinu brautina í ítölsku úrvalsdeildinni eftir erfiða byrjun á mótinu en í kvöld voru þeir stöðvaðir af Atalanta þegar liðin mættust í Torinoborg.
Eina mark leiksins var skorað eftir hálftíma leik og það gerði Duvan Zapata fyrir gestina frá Bergamo.
Þriðja tap Juventus á heimavelli í deildinni staðreynd og situr liðið í áttunda sæti deildarinnar með 21 stig og eru komnir ellefu stigum á eftir toppliði Napoli, sem einnig á leik til góða.
Atalanta hins vegar til alls líklegir og styrktu stöðu sína í 4.sæti deildarinnar þar sem þeir hafa 28 stig.