Ætluðu að gefa Carrick allt að sex leiki áður en Rangnick glansaði í viðtalinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. nóvember 2021 13:01 Ralf Rangnick verður væntanlega kynntur sem nýr knattspyrnustjóri Manchester United innan tíðar. getty/Alexander Shcherbak Forráðamenn Manchester United ætluðu að láta Michael Carrick stýra liðinu í allt að sex fleiri leikjum áður en Ralf Rangnick glansaði í atvinnuviðtalinu sínu.
Fastlega er búist við því að Rangnick verði næsti knattspyrnustjóri United og stýri liðinu út tímabilið. Hann er núna yfirmaður knattspyrnumála hjá Lokomotiv Moskvu. Carrick hefur stýrt United síðan Ole Gunnari Solskjær var sagt upp um helgina. Hann stýrði United í fyrsta sinn þegar liðið vann Villarreal, 0-2, í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn. Samkvæmt ESPN tjáðu forráðamenn United Carrick að hann myndi stýra liðinu í allt að sex fleiri leikjum. Félagið gaf sér rúman tíma til að finna nýjan stjóra en 18. desember var lokadagsetningin fyrir það. Sú áætlun breyttist þegar Rangnick kom inn í myndina og heillaði forráðamenn United í atvinnuviðtalinu sínu. Þjóðverjinn var fyrst í stað efins um að fara til United en samþykkti eftir að honum var boðið ráðgjafahlutverk hjá félaginu að tímabilinu loknu. Talið er að Rangnick muni hjálpa United að velja eftirmann sinn. Carrick stýrir United í leiknum gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn en Rangnick tekur svo við.
Enski boltinn Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Sjá meira