Risasamningur lokakaflinn í sögunni endalausu Snorri Másson skrifar 20. nóvember 2021 23:16 Casa Christi, friðað en óvinsælt hús. Það mun líklega víkja fyrir nýbyggingu, sem mun kosta á þriðja milljarð króna. Hönnunarsamkeppni var síðast haldin árið 1996. Í baksýn er Gamli skóli, sem er frá 1846. Vísir/Vilhelm Menntamálaráðuneytið er að semja um rúmlega tveggja milljarða króna nýbyggingu á lóð Menntaskólans í Reykjavík, sem þýðir að senn ætti að hilla undir langþráðar framkvæmdir á lóð skólans. Deilt hefur verið um Cösu Christi áratugum saman, en nú kunna örlög hennar að vera ráðin.
Í millitíðinni er húsnæði svo knappt að kennt er í íþróttahúsinu, á kennarastofunni, á bókasafninu og raunar í hverju skúmaskoti í skólanum. Fréttastofa leit við í MR og kannaði aðstæður: MR-ingar hafa setið kennslustundir í Cösu Christi áratugum saman. Húsið er orðið meira en 100 ára gamalt og það er orðið svolítið lúið og lengi hefur staðið til að rífa það. Allt hefur alltaf komið fyrir ekki. Enn er þó óljóst hvað skal gert við elsta hluta byggingarinnar, sem er frá 1907. Hann er friðaður vegna aldurs og þarf því annaðhvort að standa áfram sem hluti af nýbyggingu eða vera færður á brott. Hvað sem því líður, er húsið í núverandi mynd á útleið. „Nú erum við að klára verkkaupasamning við framkvæmdasýslu ríkisins. Ríkið hefur fjármagnað þessa framkvæmd og við erum núna vonandi að ganga frá þessu á allra næstu mánuðum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. 2,5 milljarðar Málið hefur velkst um í kerfinu árum ef ekki áratugum saman og árið 2016 stóð sannarlega til að ráðast í framkvæmdir. Ekki varð af þeim. Sitjandi forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, talaði meðal annars gegn áformunum. Svona gæti ný bygging litið út.MR Nú er svo komið að bygging Casa Christi er orðin með öllu ónothæf - og þar sem ekki hefur fengist tímabundið leiguhúsnæði í vetur hefur annað húsnæði skólans verið gernýtt til kennslu á meðan, allt niður í íþróttahúsið og kennarastofuna. Nú er þó verið að semja um slíkt húsnæði. Enn er óákveðið hvort og þá að hve miklu leyti verður stuðst við vinningstillögu frá árinu 1996 í fyrirhuguðum framkvæmdum. Kostnaðurinn á fimm ára framkvæmdatímabili er talinn munu nema um tveimur og hálfum milljarði króna. Eitt er ljóst, að lífið verður allt annað fyrir MR-inga þegar risin er sú 2.620 fermetra nýbygging sem legið hefur á teikniborðinu alltof lengi. „Við höfum mikinn metnað um að þetta húsnæði mæti þeim kröfum nútímalegt vísindalegt húsnæði. Þau fá loksins matsal jafnvel? Já, ég held það þetta verði aðeins betra en þegar við vorum hérna,“ segir Lilja.
Framhaldsskólar Reykjavík Skóla - og menntamál Tengdar fréttir Dyrum Cösu Christi lokað og MR-ingar fá inn í Dómkirkjunni MR-ingar munu ekki nema í húsinu Casa Christi í vetur. Úttekt var gerð á húsinu og skýrslu um ástand þess skilað fyrir skólabyrjun í haust og varð þá ljóst að ekki sé boðlegt að kenna í húsinu. Nemendur þurfi því að leita yfir Lækjargötuna í von um kennslu. 27. ágúst 2021 18:18 MR-ingar hlakka til að losna við Cösu Christi Fagna áformum um nýbyggingar á MR-reitnum, sem margir hafa mótmælt. 4. febrúar 2016 15:07 Nágrannar MR ósáttir við byggingaráform ríkisins Nágrannar MR segja byggingaframkvæmdir á þessum slóðum munu valda stórfelldum breytingum á ásýnd miðborgarinnar. 29. janúar 2016 10:44 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Sjá meira
Dyrum Cösu Christi lokað og MR-ingar fá inn í Dómkirkjunni MR-ingar munu ekki nema í húsinu Casa Christi í vetur. Úttekt var gerð á húsinu og skýrslu um ástand þess skilað fyrir skólabyrjun í haust og varð þá ljóst að ekki sé boðlegt að kenna í húsinu. Nemendur þurfi því að leita yfir Lækjargötuna í von um kennslu. 27. ágúst 2021 18:18
MR-ingar hlakka til að losna við Cösu Christi Fagna áformum um nýbyggingar á MR-reitnum, sem margir hafa mótmælt. 4. febrúar 2016 15:07
Nágrannar MR ósáttir við byggingaráform ríkisins Nágrannar MR segja byggingaframkvæmdir á þessum slóðum munu valda stórfelldum breytingum á ásýnd miðborgarinnar. 29. janúar 2016 10:44