Innlent

„Að flagna er fararheill“ sagði forsetinn um Freyju

Kristján Már Unnarsson skrifar
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, virðir fyrir sér nýja varðskipið ásamt Svavari Pálssyni, sýslumanni Norðurlands eystra, og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, virðir fyrir sér nýja varðskipið ásamt Svavari Pálssyni, sýslumanni Norðurlands eystra, og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. KMU

Koma varðskipsins Freyju í flota Landhelgisgæslunnar gjörbreytir björgunar- og öryggismálum Gæslunnar, að mati forstjóra hennar. Skipið muni gegna mikilvægu hlutverki í öryggi á norðurslóðum. Forseti Íslands og margmenni tóku á móti Freyju þegar hún sigldi í heimahöfn sína í fyrsta skipti á Siglufirði í dag.

Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá Freyju koma inn á Siglufjörð á öðrum tímanum í dag eftir fjögurra sólarhringa siglingu frá Hollandi. Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug yfir en síðasta áfangann með Freyju sigldu björgunarskipið Sigurvin og varðskipið Týr, sem núna lýkur nærri hálfrar aldar þjónustu við landsmenn.

Varðskipið Freyja að koma að bryggju á Siglufirði í dag. Vel sést hvernig málningin hefur flagnað af stefninu. Slökkviliðs-, björgunarsveita-, lögreglu- og sjúkrabílar mynda heiðursfylkingu á bryggjunni.KMU

Siglfirðingar og nærsveitungar fjölmenntu á bryggjuna þrátt fyrir norðaustan slydduhraglanda. Forseti Íslands, ráðherrar, alþingismenn og forystumenn bæjarfélaga voru í hópi þeirra sem tóku á móti þessu nýjasta fleyi Gæslunnar en mótttökuathöfnin hófst með ávarpi forseta Íslands.

„Við fögnum komu nýs varðskips. Skipið lofar góðu, glæsilegt í alla staði, vel búið til björgunar- og gæslustarfa,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson.

Tíu ár eru frá því varðskipið Þór kom til landsins. Freyja er álíka stór og vel búin en býr yfir mun meiri dráttargetu.

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, brosandi út að eyrum á bryggjunni í dag.KMU

Forsetinn hafði orð á því að málningin á Freyju hefði flagnað af á leiðinni en sló því upp í grín þegar hann rifjaði upp að slíkt hið sama hefði einnig gerst þegar Óðinn og síðar Ægir komu til landsins.

„Þannig að við segjum bara: Að flagna er fararheill,“ sagði forsetinn og uppskar hlátur viðstaddra.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra sagði aðeins níu mánuði frá því ákvörðun var tekin um kaup skipsins.

„Og er þessi fósturlandsins Freyja nú komin til okkar. Ég ætla bara að segja: Til hamingju öll og velkomin Freyja til Siglufjarðar.“

Einar H. Valsson skipherra í brúnni á Freyju.Kristinn Gauti Gunnarsson

Að ræðuhöldum loknum var viðstöddum boðið að skoða skipið með forsetann í broddi fylkingar. Í brúnni tók skipherrann, Einar H. Valsson, á móti gestum.

„Við fengum á okkur svolítinn kalda á leiðinni og skipið hefur bara reynst virkilega vel og lofar virkilega góðu.

Við erum að endurnýja 46 ára gamalt skip. Þetta skip er fjórum sinnum stærra og mun öflugra, með yfir 200 tonna dráttargetu miðað við 55 tonnum hjá Tý. Þannig að þetta er gífurlega stórt stökk í björgunargetu landsins,“ sagði Einar H. Valsson, skipherra á Freyju.

Siglufjörður er ekki fyrsta heimahöfn varðskips utan Reykjavíkur. Það voru Vestmannaeyjar en árið 1919 keyptu Eyjamenn björgunarskipið Þór og fengu það árið 1920. Það var síðan gert að varðskipi og vopnað fallbyssu.

Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar.Kristinn Gauti Gunnarsson

„Þetta er náttúrlega fyrst og fremst mikið gleðiefni,“ sagði Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar.

„Í mörg ár hafa menn verið að tala um að auka viðbragð úti á landi. Augljóslega er þetta að verða mjög við þeim óskum. Fyrir mér er þetta fyrsti áfanginn í því að búa til aukið viðbragð við vá úti á landsbyggðinni,“ sagði bæjarstjórinn.

„Þetta er gríðarlega mikill áfangi. Þetta gjörbreytir björgunar- og öryggismálum Landhelgisgæslunnar og færir okkur á annað stig. Að hafa skip á Siglufirði, eða hér fyrir norðan land, og annað í Reykjavík, það breytir öllu,“ sagði Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Freyja kemur til landsins eftir langa bið

Varðskipið Freyja mun koma í höfn á Siglufirði á hádegi í dag. Það verður í fyrsta sinn sem skipið leggst að bryggju í íslenskri lögsögu. 

Nýja varðskipið lagt af stað til Siglufjarðar

Freyja, nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar, lagði af stað til Íslands frá Rotterdam í Hollandi í dag. Skipið er væntanlegt til Sigulufjarðar á laugardag en það á að leysa varðskipið Tý af hólmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×