Safnar gögnum fyrir hópmálsókn gegn íslenska ríkinu Eiður Þór Árnason skrifar 4. nóvember 2021 09:00 Arnar Þór Jónsson lögmaður vill að það fari fram hreinskiptin umræða um aukaverkanir bóluefna. Samsett Þrjátíu konur hafa lýst yfir áhuga á að vera hluti af skaðabótamáli á hendur íslenska ríkinu í tengslum við aukaverkanir bóluefna gegn Covid-19. Ekki liggur fyrir hver endanlegur fjöldi verður en allar konurnar eiga það sameiginlegt að hafa lýst breytingum á tíðahring eftir að þær voru bólusettar.
Arnar Þór Jónsson, lögmaður hópsins, segir að nú standi yfir gagnaöflun og unnið sé að fjármögnun málarekstrarins. Hann telur að umræðan um bólusetningar hafi verið of einhliða fram að þessu. Nefnd sem var gert að rannsaka tilkynnt tilfelli tíðahringsröskunar fyrir Lyfjastofnun og Embætti landlæknis skilaði niðurstöðum sínum í október. Í þeim kemur fram að ekki sé hægt að útiloka með óhyggjandi hætti tengsl milli bólusetningar og sjö tilkynntra tilvika. Þegar nefndin hófst handa í byrjun ágúst hafði Lyfjastofnun borist tæplega 400 tilkynningar sem vörðuðu raskanir á tíðahring í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19. Síðan þá hefur fjöldi þeirra yfir tvöfaldast. Skipti máli að skoða málið með gagnrýnum hætti „Það hafa dúkkað upp óþægilega mörg tilfelli þar sem konur sjá orsakasamhengi á milli bólusetningar og aukaverkana eða óþæginda sem þær hafa fundið fyrir. Við teljum að miðað við það sem við sjáum að það verði ekki fullyrt að öll þessi tilvik séu ótengd bólusetningunum,“ segir Arnar. Hópurinn telji það skipta máli að þessi mál séu skoðuð með gagnrýnum hætti og að það fari fram hreinskiptin og gagnrýnin umræða um aukaverkanir bóluefnanna. „Umræðan um þetta hefur ekki verið á nægilega breiðum grundvelli og í því skyni að víkka hana út þá þurfum við að afla gagna, tala við sérfræðinga og taka viðtöl við þessar konur. Þetta er heilmikil vinna en að okkar mati þjónar þetta mikilvægum tilgangi.“ Meiri upplýsingaskortur á Íslandi Arnar segir að almennt sé það framleiðandi vöru sem beri ábyrgð ef hún reynist skaðvænleg. „En ef það er þannig að þessir framleiðendur hafa undanþegið sig í einhverjum skilningi skaðabótaábyrgð þá hlýtur málshöfðunin að beinast að ríkinu sem hefur hvatt konur og borgarana til að taka við þessari lyfjagjöf án þess að hafa látið tilhlýðilegar upplýsingar fylgja með og hvetja til aðgæslu.“ Málflutningurinn verði meðal annars byggður á því að skortur hafi verið á upplýsingagjöf til fólks sem þáði bólusetningu gegn Covid-19. „Hér á Íslandi sýnist mér sá upplýsingaskortur hafa verið alvarlegri en víða annars staðar. Það er bara gengið á línuna og fólk sprautað án þess að það sé nokkuð spurt um hvort það sé með lyfjaónæmi, ofnæmi, hvernig heilsufarið sé er, eða neitt slíkt. Án þess getum við ekki sagt að það hafi verið aflað upplýsts samþykkis sem er grundvallaratriði í öllu sem lýtur að lyfjagjöf og lýðheilsu,“ segir Arnar. Hann hvetji fólk sem telur sig hafi orðið fyrir tjóni og heilbrigðisstarfsfólk til að hafa samband. Arnar segir viðfangsefnið núna sé að staðreyna það tjón sem konurnar í umræddum 30 manna hópi hópi hafi orðið fyrir. „Þá þarf að draga fram það sem við teljum beinlínis villandi eða ómálefnalegar upplýsingar og einhliða málflutningur af hálfu þeirra sem hafa verið að halda þessum lyfjum að fólki,“ segir Arnar. Rebekka Ósk Sváfnisdóttir.Aðsend Ósátt með niðurstöðu nefndarinnar Fram kom i niðurstöðum nefndarinnar sem skoðaði tilkynningar til Lyfjastofnunar að milliblæðingar og blæðingaóregla væri algengt vandamál hjá konum á frjósemisskeiði. Þegar svo stór hluti sé bólusettur á nær sama tíma sé óhjákvæmilegt að einhverjar þessara kvenna fái óreglu á blæðingar á sama tímabili og bólusetning á sér stað. Þá var vísað til þess að ekki liggi enn fyrir vísindalegar niðurstöður sem hafi sýnt fram á samhengi milli Covid-19 bólusetningar og óreglulegra blæðinga kvenna. Jafnframt segir í skýrslu nefndarinnar að nýleg erlend rannsókn gefi vísbendingu um möguleg tengsl milli álags tengdum heimsfaraldri Covid-19 og blæðingaóreglu kvenna. Rebekka Ósk Sváfnisdóttir, sem er í forsvari fyrir hópinn sem íhugar að höfða mál gegn ríkinu, hefur gagnrýnt þessar niðurstöður og kallað eftir að kafað verði dýpra í þau tilvik sem hafi verið tilkynnt hér á landi.
Bólusetningar Kvenheilsa Heilbrigðismál Tengdar fréttir Íhuga hópmálsókn á hendur ríkinu vegna áhrifa bólusetningar Hópur kvenna sem hefur upplifað breytingar á tíðahring eftir bólusetningu gegn Covid-19 íhugar nú að hefja hópmálsókn á hendur íslenska ríkinu vegna málsins. 12. október 2021 13:00 Ekki útilokað að bólusetning hafi raskað tíðahring kvenna í nokkrum tilvikum Ekki er hægt að útiloka með óhyggjandi hætti tengsl nokkurra tilfella blæðinga í kringum tíðahvörf við bólusetningu gegn Covid-19. Hið sama á við um hluta tilfella sem varða óreglulegar og langvarandi blæðingar. 7. október 2021 16:44 Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Ætla ekki að aðstoða hundruð manna í lokaðri námu Erlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Innlent Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent „Ég er ekkert búin að læra“ Innlent Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Innlent Fleiri fréttir Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Kolefnisgjald hækkað en um minna en til stóð „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Sjá meira
Íhuga hópmálsókn á hendur ríkinu vegna áhrifa bólusetningar Hópur kvenna sem hefur upplifað breytingar á tíðahring eftir bólusetningu gegn Covid-19 íhugar nú að hefja hópmálsókn á hendur íslenska ríkinu vegna málsins. 12. október 2021 13:00
Ekki útilokað að bólusetning hafi raskað tíðahring kvenna í nokkrum tilvikum Ekki er hægt að útiloka með óhyggjandi hætti tengsl nokkurra tilfella blæðinga í kringum tíðahvörf við bólusetningu gegn Covid-19. Hið sama á við um hluta tilfella sem varða óreglulegar og langvarandi blæðingar. 7. október 2021 16:44