Anna Sigrún lætur í veðri vaka að Páll Vilhjálmsson sé siðblindur Jakob Bjarnar skrifar 20. október 2021 09:15 Enginn ætti að þurfa að velkjast í vafa um, og ræður þar samhengið, að Anna Sigrún telur Pál Vilhjálmsson eiga við siðblindu að stríða. Vísir/Egill/Fjölbrautaskólinn í Garðabæ Anna Sigrún Baldursdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landspítala, ritar grein þar sem hún lætur að því liggja að Páll Vilhjálmsson bloggari og framhaldsskólakennari sé siðblindur.
Óvænt hafa bloggskrif Páls tröllriðið umræðunni en eins og Vísir hefur greint frá gerði hann sér mat úr því þegar Helgi Seljan blaðamaður á Ríkisútvarpinu greindi frá því í spjallþætti Gísla Marteins Baldurssonar síðasta föstudagskvöld að hann hafi lagst inn á geðdeild vegna geðrænna vandamála. Páll vill hafa það til marks um að fréttaflutningur Helga af málefnum Samherja megi þar með teljast ómarktækur með öllu. „Burtséð frá bataferlinu er í meira lagi undarlegt að geðveikur maður fari með víðtækt dagskrárvald á ríkisreknum fjölmiðli, RÚV. Geðveikur Helgi skipuleggur í áravís skandal hægri vinstri, skáldar ef ekki vill betur til. Sá geðveiki fær fullt umboð yfirstjórnar RÚV til að flytja áróður klæddan í búning frétta,“ segir meðal annars í hinni umdeildu bloggfærslu Páls. Fjölmörg mikilmenni glímt við þunglyndi Fjölmörgum er ofboðið vegna skrifanna og hafa lýst því yfir. Anna Sigrún bætist nú í þann hóp en hún skrifar pistil sem birtist í Fréttablaðinu í dag undir fyrirsögninni „Geðveikt“. Hún nefnir hvorki Pál né Helga en enginn ætti að þurfa að velkjast í vafa um hvert tilefni skrifa hennar er. Hún segir að marga þungavigtarmenn mannkynssögunnar hafa glímt við geðraskanir af ýmsu tagi. Hún nefnir Abraham Lincoln, Winston Churchill og Martin Luther King Jr. sem dæmi; „allir voru þunglyndar frelsishetjur, horfðust í augu við sjúkdóminn en voru drifnir áfram af krafti sannfæringar um mannlega reisn. Þeir deildu einnig algengu persónueinkenni þunglyndra; djúpri samkennd (e. empathy) með öðru fólki.“ Anna Sigrún segir að enn sé nokkuð í land en stórstígar breytingar megi greina til batnaðar í meðferð geðraskana og fordómar hafi minnkað. „Þannig telja fæstir skömm eða sérstakar starfshindranir eigi að fylgja geðsjúkdómi frekar en öðrum sjúkdómum“. Meðal þeirra sem hafa átt við geðraskanir að stríða, er Winston Churchill forsætisráðherra Bretlands og rithöfundur. En hann kallaði þunglyndi sitt svartan hund. Einn af hverjum fimm Íslendingum er talinn þurfa að glíma við þunglyndi einhvern tíma á lífsleiðinni. Þá vendir Anna Sigrún kvæði sínu í kross og beinir talinu að öðru fyrirbæri: siðblindu sem hún segir ólæknanlega. Enginn ætti að þurfa að velkjast í vafa um, af samhenginu, hvern Anna Sigrún hefur í huga í því sambandi. En pistillinn er nú í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum. Hún segir um alvarlega persónuröskun að ræða sem hafi fylgt mannkyni lengi og er tíðnin talin vera 0,5 til 1 prósent. „Greind siðblindra og félagslegir hæfileikar villa gjarnan um fyrir samferðafólki og því komast þeir oft til áhrifa í samfélaginu og hasla sér völl.“ Anna Sigrún segir að siðblindir játi sig eðli máls samkvæmt aldrei sem slíka. Skólameistari kallar Pál á teppið Eins og Vísir hefur greint frá því að skrif Páls séu til skoðunar hjá yfirstjórn Fjölbrautaskólans í Garðabæ hvar Páll starfar en á annan tug erinda hafa borist skólanum þar sem gerðar eru athugasemdir við hina umdeildu bloggfærslu. Páll hefur verið kallaður á fund Kristins Þorsteinssonar skólameistara þar sem farið var yfir málin en í viðtali við Mannlíf segist hann þar hafa komið sjónarmiðum sínum að. Páll telur ekkert athugavert við skrif sín og undrast reyndar hin miklu viðbrögð og segist ekkert geta gert í því hvernig skrifunum er tekið. „Helgi er opinber persóna í mjög fyrirferðarmikilli opinberri umræðu. Það eina sem ég gerði er að setja þetta í annað samhengi heldur en hann og RÚV voru að setja þetta í. Þeir settu þetta í það samhengi að hann væri fórnarlamb,“ segir Páll og stendur fastur á sínu.
Framhaldsskólar Fjölmiðlar Samherjaskjölin Samfélagsmiðlar Geðheilbrigði Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira