Innlent

Hraða­mynda­vélar teknar í notkun í kjöl­far fjölda slysa

Eiður Þór Árnason skrifar
Búið var að setja myndavélarnar upp í vor. 
Búið var að setja myndavélarnar upp í vor.  Samsett

Tvær hraðamyndavélar voru teknar í notkun á Hörgárbraut á Akureyri í dag en vegarkaflinn tilheyrir Þjóðvegi 1 sem liggur í gegnum bæinn.

Vélarnar eru staðsettar við ljósastýrða gönguþverun við Stórholt en búnaðurinn var settur upp síðastliðið vor. Hann er nú kominn í fulla virkni.

Fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni að uppsetning vélanna sé liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og markmiðið að fækka umferðarslysum með því að draga úr ökuhraða og akstri gegn rauðu ljósi á þjóðvegum.

Keyrt á marga vegfarendur á hættulegum vegarkafla

Sá kafli Hörgárbrautar sem liggur frá hringtorginu við verslun Bónuss við Undirhlíð og niður að brúnni yfir Glerá hefur reynst hættulegur vegfarendum undanfarin ár og minnst fjögur alvarleg slys þar átt sér stað á rúmum sex árum.

Hafa íbúar í hverfinu lengi kallað eftir aðgerðum en mörg börn ganga reglulega yfir þjóðveginn, sem liggur í gegnum íbúðahverfi, á leið til og frá skóla.

Vísir ræddi í fyrra við Jóhönnu Ásmundsdóttur, kennara á Akureyri, sem ekið var á þegar hún var á leið yfir gangbraut í nóvember 2017. Mátti litlu muna þegar ökumaður bíls sem ók of hratt á Hörgárbrautinni bremsaði ekki fyrr en í sex metra fjarlægð. Hámarkshraði er 50 kílómetrar í götunni.

„Ég bjarga bara lífi mínu með því að stökkva,“ sagði Jóhanna. Hundurinn hennar sem var með í för slapp ekki og fannst 21 metra frá árekstrinum.

Í kjölfar slyssins var sett upp ljósastýrð gangbraut við slysstaðinn.

Karlmaður slasaðist alvarlega þegar ekið var á hann við Hörgárbraut árið 2016 og árið 2017 var ekið á Jóhönnu. Árið 2018 slasaðist fimm ára drengur sem varð fyrir bíl á sama stað. Í febrúar í fyrra var svo ekið á sjö ára stúlku, á annarri gangbraut, nokkur hundruð metrum fyrir ofan gangbrautina þar sem ekið var á Jóhönnu.

Tilkynna líka rauðljósaakstur til lögreglu

Að sögn Vegagerðarinnar eru hraðamyndavélarnar beintengdar næstu umferðarljósum og eru upplýsingar um hraðabrot og rauðljósaakstur sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki sé tekin mynd nema um brot sé að ræða.

Lögreglan á Norðurlandi eystra, Akureyrarbær og Vegagerðin annast uppsetningu og rekstur hraðamyndavélanna.

Íbúar í aðliggjandi hverfum hafa kallað eftir því að undirgöng verði gerð fyrir gangandi vegfarendur þar sem Jóhanna lenti í slysinu.

Fram kom á seinasta ári að slík göng væru ekki á dagskrá á næstunni en tillagan væri í skoðun hjá Akureyrarbær í samvinnu við lögreglu og Vegagerðina.


Tengdar fréttir

„Ég skil ekki hvernig þú lifðir þetta af“

„Ég sagði strax að mamma hefði vakað yfir mér og kippt í mig. Ef bíllinn hefði hitt mig eins og hundinn þá væri ég ekki hér,“ segir Jóhanna Ásmundsdóttir, kennari á Akureyri.

Ekið á fimm ára dreng á Akureyri

Ekið var á fimm ára dreng á Hörgárbraut norðan við Skarðshlíð á Akureyri síðdegis í dag. Hann var fluttur á sjúkrahús til frekari aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×