Fengu ekki að syrgja eðlilega því dánarbúið var í höndum ókunnugs manns Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 21. september 2021 20:00 María Björk Sverrisdóttir heldur úti vinsælum söngskóla og hefur gert í marga áratugi. vísir/egill Fjölskyldu manns sem missti móður sína úr krabbameini þykir stórfurðulegt að Landsréttur hafi litið fram hjá hinsta vilja hennar í erfðaskrá. Eignir konunnar sátu eftir í höndum nýs eiginmanns sem losaði sig við ýmsa muni hennar án þess að láta fjölskylduna vita. Hæstiréttur hefur nú dæmt syninum í vil og verður dánarbúi hennar skipt á milli þeirra.
Konan lést árið 2016 en hún hafði gifst manninum skömmu eftir að hún hafði greinst með krabbamein. Það var vilji hennar að eftirlifandi eiginmaðurinn sæti að óskiptu dánarbúi í þrjú ár eða þar til hann hæfi sambúð með annarri konu. Það fórst þó fyrir að láta fyrrnefnda atriðið í erfðaskrána. „Þetta voru bara algjör mistök hjá þeim sem gerði erfðaskrána af því að hann vissi ekki betur en að þetta stæðist ekki lög og breytir þessu. En hún veit ekki af þessum breytingum og skrifar undir. Og hún er orðin mjög veik þegar hún gerir það,“ segir María Björk Sverrisdóttir, tengdadóttir hinnar látnu. Lögmaðurinn hefur sjálfur gengist við þessum mistökum fyrir dómi. Hafa ekki farið inn á heimilið eftir andlátið Konan lét meðal annars eftir sig íbúð í Kópavogi og hús í Þorlákshöfn. Eftirlifandi eiginmaður hennar hefur haft yfirráð yfir öllum hennar eigum síðan hún lést og meðal annars losað sig við mikið af hennar persónulegu munum. Hann lét fjölskyldu einkasonarins þó ekki vita af því og hefur ekki gefið henni tækifæri á að fara í gegn um dót hennar, að sögn Maríu. „Það sem okkur fannst svo skrýtið var að þetta var náttúrulega einkasonur hennar. Og hann fær ekki að fara yfir neina persónulega muni, hann fær ekki að fara og kíkja á fötin og bara þefa af þeim. Eitthvað sem að er svona partur af því að syrgja og klára málið... Fá þarna barnamyndir af sér og bara svona æskuna sína. Þessu var bara öllu eytt,“ segir María Björk. Þau hafi ekki einu sinni komið inn í hús móðurinnar eftir andlátið. Henni finnst undarlegt hve mikil völd sá fær sem ræður yfir óskiptu búi. „Ef þetta er einhver óviðkomandi maður, því í okkar augum er þetta það, þá er það skrýtið að það sé hægt að hafa þessi völd. Að við getum ekki farið og skoðað neitt hjá henni eftir andlátið.“ Óvænt niðurstaða Landsréttar Þegar þrjú ár voru liðin frá andláti konunnar fór einkasonur hennar fram á það við manninn að hann léti skipta búinu eins og móðir hans hafi viljað. Hann varð þó ekki við því. Síðar komst fjölskyldan að því að maðurinn væri kominn í sambúð með konu í Svíþjóð og taldi þá ljóst að forsendur fyrir því að hann sæti á óskiptu búi væru brostnar. Því var farið með málið fyrir héraðsdóm þar sem maðurinn neitaði að vera í sambúð með sænsku konunni - hann væri aðeins að leigja af henni íbúð. Héraðsdómur taldi þó að sýnt hefði verið fram á að maðurinn væri í sambúð með konunni úti og féllst á kröfuna um að búinu yrði skipt. Hann áfrýjaði þessu til Landsréttar sem sneri dómnum við á allt öðrum og heldur óvæntum forsendum, að mati Maríu. Dómurinn taldi nefnilega að konan hafi yfir höfuð ekki mátt hafa ákvæði í erfðaskrá sinni um að skipta skildi búinu ef maðurinn færi í sambúð með annarri konu. Fölsuð gögn fyrir dómi María Björk furðar sig mjög á þessari niðurstöðu Landsréttar og telur hann hunsa algjörlega hinsta vilja hins látna sem var skýr í erfðaskrá. Á meðal þess sem lögmaður fjölskyldunnar benti á í málinu var að sterkar vísbendingar væru um að eftirlifandi eiginmaðurinn hefði lagt fram fölsuð gögn til að reyna að sýna fram á að hann væri að leigja íbúð af sænsku konunni en væri ekki í sambúð með henni. „Hvergi kemur fram neitt nafn á skjölunum, hvorki reikningseigandi né reikningsmóttakandi. Útbúinn hefur verið reitur fyrir miðju skjalsins sem er hvítur, og ritað inn í hann eftir á, mánuðirnir maí, júní, ágúst og september. Eins og framlögð skjöl fyrir Landsrétti á bls. 210-x sanna, er um að ræða annað letur í hvíta dálkinum heldur en í skjalinu sjálfu,“ segir í greinargerð lögmannsins til Hæstaréttar síðar í ferlinu, sem taldi það rétt að gögnin sýndu engan vegin fram á að maðurinn væri að leigja íbúðina. Fordæmisgefandi mál Fjölskyldan fór með málið til Hæstaréttar sem samþykkti að taka það fyrir því það gæti verið fordæmisgefandi. Dómur Hæstaréttar. Dómurinn taldi túlkun Landsréttar á málinu ranga og benti á að það væri grundvallarregla í erfðalögum að virða vilja þess látna í erfðaskrá eins og unnt væri. Þannig hafi konan mátt hafa sambúðarákvæðið inni enda ljóst að vilji hennar hafi staðið til að hleypa einkasyni sínum að búinu án þess að það skiptist líka til barna sem eftirlifandi eiginmaðurinn átti einn. María telur tíma til kominn að breyta erfðalögum til að aðlaga þau að breyttum fjölskyldumynstrum. „Því ef þetta hefði verið bara maður sem kannski ól soninn upp þá hefði þetta aldrei komið upp. En þarna er kominn maður sem er ekkert samband við og við vitum hvernig brotnar fjölskyldur geta verið. Þær eru alls konar í dag og það heyrir eiginlega bara til undantekningar ef að fólk sem á börn saman heldur óslitnu sambandi til dauðadags,“ segir hún. Hún hvetur fólk til að huga sjálft að erfðaskrám sínum og hvernig það vilji haga sínum málum eftir andlát. „Þetta eru mál sem við verðum að hafa á hreinu því við vitum auðvitað aldrei hvenær við föllum frá.“
Dómsmál Fjölskyldumál Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Hér eru „þessar elskur“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Brenna líkin á nóttunni Innlent Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Innlent Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Innlent Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Innlent Töluðu saman í fyrsta sinn í tvö ár Erlent Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Fleiri fréttir Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Séreign áfram leyfð inn á lán og ekkert kílómetragjald „Ég er ekkert búin að læra“ Hófu frumkvæðisathugun á aðkomu Jóns í ráðuneytinu Rýnt í kannanir og tendrun jólatrés í Hafnarfirði Alma verði heilbrigðisráðherra í stjórn Kristrúnar Rjúfa tólf vikna múrinn við rannsókn í Neskaupstað Skorar á fólk að dvelja heilan dag á kaffistofu Samhjálpar Húsfélag sektaði íbúa um 10 þúsund vegna of lélegra sameignarþrifa Hér eru „þessar elskur“ Hærra kolefnisgjald og minna til nýja Landspítalans vegna frestunar kílómetragjalds Fjárlögin áfram rædd í dag og styttist í þinglok Bein útsending: Frambjóðendur tala við nemendur Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Færa til fjármuni til þess að bæta aðstöðu á bráðamóttöku Brenna líkin á nóttunni Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Sjá meira