ÍTF krefst þess að framkvæmdastjóri og stjórn KSÍ víki Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. ágúst 2021 12:46 Klara Bjartmarz er framkvæmdastjóri KSÍ. vísir/egill Stjórn Íslensks toppfótbolta, ÍTF, krefst þess að Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, og stjórn sambandsins stígi frá borði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá samtökunum. Jafnramt vill ÍTF að boðað verði til auka ársþings til að endurheimta traust innan knattspyrnuhreyfingarinnar og almennings til KSÍ. Þar eigi að kjósa bráðabirgðastjórn sem muni sitja fram að næsta ársþingi í febrúar 2022. Á fundi KSÍ í gær var rætt um að boða til auka ársþings en engin formleg tillaga var lögð fram. ÍTF fundaði í gærkvöldi þar sem farið var yfir atburði helgarinnar og yfirlýsingu stjórnar KSÍ. Mat ÍTF er að KSÍ hafi gengið alltof skammt og nauðsynlegt sé að framkvæmdastjóri og stjórn axli ábyrgð. Framkvæmdastjóri og stór hluti stjórnar hafi setið lengi, beri ábyrgð á þeim málum sem til umfjöllunar hafa verið undanfarna daga og séu ófær um að leiða vinnu við laga það sem aflaga hefur farið. Yfirlýsing ÍTF Formannafundur ÍTF um málefni KSÍ var haldinn að kvöldi 29. ágúst 2021 Á fundinum fór stjórn ÍTF yfir atburði helgarinnar og yfirlýsingu stjórnar KSÍ sem send var út 29. ágúst. Það var samhljóma niðurstaða fundarins að yfirlýsing KSÍ gangi allt of skammt og nauðsynlegt sé að framkvæmdastjóri og stjórn axli sameiginlega ábyrgð. Með það fyrir augum að endurbyggja traust innan knattspyrnuhreyfingarinnar og almennings gagnvart KSÍ er það mat ÍTF að boða þurfi til auka ársþings samkvæmt lögum KSÍ. Þar sem kosin verður bráðabirgðastjórn sem situr fram að næsta ársþingi sem haldið verður í febrúar 2022. Framkvæmdastjóri KSÍ og hluti stjórnar hefur setið lengi og í ljósi stöðu sinnar bera þau ábyrgð á þeim málum sem til umfjöllunar hafa verið síðustu daga. Knattspyrnuhreyfingin getur ekki samþykkt að núverandi stjórn KSÍ og framkvæmdastjóri sambandsins muni leiða vinnu við að lagfæra þá hluti sem farið hafa aflaga og skoða frá grunni þá menningu sem við lýði er innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Stjórn ÍTF Guðni Bergsson sagði af sér sem formaður KSÍ eftir mikil fundarhöld um helgina. Stjórn sambandsins ákvað hins vegar að sitja áfram og Gísli Gíslason og Borghildur Sigurðardóttir, varaformenn KSÍ, gegna störfum formanns á meðan. Í samtali við Bítið á Bylgjunni sagði Borghildur að ekki hafi verið möguleiki á því að öll stjórnin myndi hætta. Þá yrði KSÍ óstarfhæft. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, á sæti í stjórn ÍTF og sagði að þar á bæ ríkti mikil óánægja með hvernig KSÍ hafi tekið á málunum. „Í stórum dráttum finnst fólki ekki nógu langt gengið og er ósátt við viðbrögðin sem komu frá KSÍ um helgina. Fólki finnst að meira þurfi að gera. Sú forysta sem er í dag er rúin trausti og það þarf að taka meira til að hægt að sé að halda áfram og unnið aftur traust hjá hreyfingunni og samfélaginu. Það þarf að hreinsa meira til en að láta Guðna einan bera þennan kross,“ sagði Sævar við Vísi í morgun. Framundan eru þrír leikir hjá íslenska karlalandsliðinu í undankeppni HM 2022, gegn Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi. Kolbeinn Sigþórsson var tekinn út úr landsliðshópnum samkvæmt ákvörðun stjórnar KSÍ. Rúnar Már Sigurjónsson dró sig sjálfur úr hópnum og eru tvær ástæður gefnar fyrir því í yfirlýsingu KSÍ, meiðsli og persónulegar ástæður. KSÍ Kynferðisofbeldi Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira
Jafnramt vill ÍTF að boðað verði til auka ársþings til að endurheimta traust innan knattspyrnuhreyfingarinnar og almennings til KSÍ. Þar eigi að kjósa bráðabirgðastjórn sem muni sitja fram að næsta ársþingi í febrúar 2022. Á fundi KSÍ í gær var rætt um að boða til auka ársþings en engin formleg tillaga var lögð fram. ÍTF fundaði í gærkvöldi þar sem farið var yfir atburði helgarinnar og yfirlýsingu stjórnar KSÍ. Mat ÍTF er að KSÍ hafi gengið alltof skammt og nauðsynlegt sé að framkvæmdastjóri og stjórn axli ábyrgð. Framkvæmdastjóri og stór hluti stjórnar hafi setið lengi, beri ábyrgð á þeim málum sem til umfjöllunar hafa verið undanfarna daga og séu ófær um að leiða vinnu við laga það sem aflaga hefur farið. Yfirlýsing ÍTF Formannafundur ÍTF um málefni KSÍ var haldinn að kvöldi 29. ágúst 2021 Á fundinum fór stjórn ÍTF yfir atburði helgarinnar og yfirlýsingu stjórnar KSÍ sem send var út 29. ágúst. Það var samhljóma niðurstaða fundarins að yfirlýsing KSÍ gangi allt of skammt og nauðsynlegt sé að framkvæmdastjóri og stjórn axli sameiginlega ábyrgð. Með það fyrir augum að endurbyggja traust innan knattspyrnuhreyfingarinnar og almennings gagnvart KSÍ er það mat ÍTF að boða þurfi til auka ársþings samkvæmt lögum KSÍ. Þar sem kosin verður bráðabirgðastjórn sem situr fram að næsta ársþingi sem haldið verður í febrúar 2022. Framkvæmdastjóri KSÍ og hluti stjórnar hefur setið lengi og í ljósi stöðu sinnar bera þau ábyrgð á þeim málum sem til umfjöllunar hafa verið síðustu daga. Knattspyrnuhreyfingin getur ekki samþykkt að núverandi stjórn KSÍ og framkvæmdastjóri sambandsins muni leiða vinnu við að lagfæra þá hluti sem farið hafa aflaga og skoða frá grunni þá menningu sem við lýði er innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Stjórn ÍTF Guðni Bergsson sagði af sér sem formaður KSÍ eftir mikil fundarhöld um helgina. Stjórn sambandsins ákvað hins vegar að sitja áfram og Gísli Gíslason og Borghildur Sigurðardóttir, varaformenn KSÍ, gegna störfum formanns á meðan. Í samtali við Bítið á Bylgjunni sagði Borghildur að ekki hafi verið möguleiki á því að öll stjórnin myndi hætta. Þá yrði KSÍ óstarfhæft. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, á sæti í stjórn ÍTF og sagði að þar á bæ ríkti mikil óánægja með hvernig KSÍ hafi tekið á málunum. „Í stórum dráttum finnst fólki ekki nógu langt gengið og er ósátt við viðbrögðin sem komu frá KSÍ um helgina. Fólki finnst að meira þurfi að gera. Sú forysta sem er í dag er rúin trausti og það þarf að taka meira til að hægt að sé að halda áfram og unnið aftur traust hjá hreyfingunni og samfélaginu. Það þarf að hreinsa meira til en að láta Guðna einan bera þennan kross,“ sagði Sævar við Vísi í morgun. Framundan eru þrír leikir hjá íslenska karlalandsliðinu í undankeppni HM 2022, gegn Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi. Kolbeinn Sigþórsson var tekinn út úr landsliðshópnum samkvæmt ákvörðun stjórnar KSÍ. Rúnar Már Sigurjónsson dró sig sjálfur úr hópnum og eru tvær ástæður gefnar fyrir því í yfirlýsingu KSÍ, meiðsli og persónulegar ástæður.
Formannafundur ÍTF um málefni KSÍ var haldinn að kvöldi 29. ágúst 2021 Á fundinum fór stjórn ÍTF yfir atburði helgarinnar og yfirlýsingu stjórnar KSÍ sem send var út 29. ágúst. Það var samhljóma niðurstaða fundarins að yfirlýsing KSÍ gangi allt of skammt og nauðsynlegt sé að framkvæmdastjóri og stjórn axli sameiginlega ábyrgð. Með það fyrir augum að endurbyggja traust innan knattspyrnuhreyfingarinnar og almennings gagnvart KSÍ er það mat ÍTF að boða þurfi til auka ársþings samkvæmt lögum KSÍ. Þar sem kosin verður bráðabirgðastjórn sem situr fram að næsta ársþingi sem haldið verður í febrúar 2022. Framkvæmdastjóri KSÍ og hluti stjórnar hefur setið lengi og í ljósi stöðu sinnar bera þau ábyrgð á þeim málum sem til umfjöllunar hafa verið síðustu daga. Knattspyrnuhreyfingin getur ekki samþykkt að núverandi stjórn KSÍ og framkvæmdastjóri sambandsins muni leiða vinnu við að lagfæra þá hluti sem farið hafa aflaga og skoða frá grunni þá menningu sem við lýði er innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Stjórn ÍTF
KSÍ Kynferðisofbeldi Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira