Kosningar 2021: Broddur færist í baráttuna Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði skrifar skrifar 25. ágúst 2021 07:01 Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, rýnir í fylgi flokkanna. Vísir Þótt heldur dauft hafi verið um litast í kosningabaráttunni hingað til má samt sjá svolítinn brodd færast í átökin núna þegar aðeins um mánuður er í kjördag. Því er kannski ekki fráleitt að spyrja, um hvað verði eiginlega kosið. Um hvað snúast þessar kosningar?
2021 Mest lesið Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Fleiri fréttir Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Sjá meira
Líkt og ég hef áður nefnt í þessum greinaflokki hefur sóttin hingað til yfirskyggt alla þjóðmálaumræðu í landinu. Lengst af var almenn sátt um tálmanirnar og um þá nálgun stjórnvalda að fylgja ráðum sérfræðinga. Og satt að segja hreyktum við okkur um stund af einkar farsælli ferð í gegnum fárið. En róðurinn hefur nokkuð herst að undanförnu. Viðameiri tálmanir hér Á meðan fréttir dundu yfir af harðari ráðstöfunum víða annars staðar prísuðu Íslendingar sig sæla. Því klóra margir sér í höfðinu yfir þeirri stöðu sem uppi var komin, þegar þetta er skrifað, að Íslendingar skuli nú sæta strangari sóttvarnaráðstöfunum en flestir aðrir á Evrópska efnahagssvæðinu, bæði innanlands og á landamærunum. Bólusettir Íslendingar mæta viðameiri hindrunum við heimkomu en borgarar flestra annarra ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu. Bólusettir EES-borgarar fara frjálst á milli Kaupmannahafnar, Berlínar og Barselónu en Íslendingar þurfa hins vegar hvort tveggja að sæta skimun fyrir brottför og einnig eftir hana – auk þess að skrá sig inn í landið. Þótt kannski hilli undir að dregið verði úr tálmunum á næstunni, líkt og boðað hefur verið, mun þessi staða líkast til hafa sín áhrif á lokasprettinn í kosningabaráttunni. Stjórnmálaflokkar þýfgaðir svara Lengst af veigruðu stjórnmálaflokkarnir sér við að móta stefnu í sóttvarnamálinu, vonuðust eflaust til þess að vandinn yrði gufaður upp fyrir kjördag og að þeir gætu því rætt önnur mál fyrir þessar kosningar. Vissulega er ekki loku fyrir það skotið, að staðan verði orðin vænlegri þegar þar að kemur og að önnur mál taki yfir sviðið, svo sem kannski flóttamannamál í kjölfar atburðanna í Afganistan. Eigi að síður má nú samt ljóst vera að flokkarnir samt þýfgaðir svara í sóttvarnamálinu, að kosningarnar muni að einhverjum hluta hverfast bæði um farsóttina sem slíka og líka almennt um heilbrigðismál í víðara samhengi – hvort tveggja er jú samtengt. Átakaás heilbrigðismála Sitjandi ríkisstjórn er samsett með óhefðbundnum hætti. Flokkar á sitt hvorum endanum í afstöðu til samspils ríkisrekstrar og einkaframtaks sitja nú saman við stjórnarborðið. Á meðan VG vill færa aukið skattfé inn í almenna heilbrigðiskerfið er Sjálfstæðisflokkur áfram um að auka veg einkaframtaksins í heilbrigðisþjónustu. Úr hefur orðið störukeppni, þar sem hvorug stefnan hefur náð fram að ganga. Hér er augljós átakaás sem ugglaust verður rækilega ræddur í kosningabaráttunni. En hvernig standa flokkarnir þá gagnvart þessum málum? Rýnum næst í nýja skoðanakönnun Maskínu til þess að glöggva okkur á því. Hin (fyrrum?) frjálslynda miðja Í sögulegu tilliti hafa þrír stjórnmálaflokkar öðrum fremur gefið sig út fyrir frjálslynda lífsafstöðu í íslenskum stjórnmálum; Samfylking, Píratar og Viðreisn. Athygli vekur að enginn þeirra hefur haldið fána frjálslyndis sérdeilis hátt á lofti í fárinu. Raunar hafa tveir þeirra tekið sér stöðu á strangari hlið við stjórnarstefnuna, semsé Samfylking og Píratar, en Viðreisn hefur verið fremur þögul, enn sem komið er. Einmitt og akkúrat í þessu ljósi er athyglisvert að allir flokkarnir þrír tapa nú töluverðu fylgi í könnuninni. Fall Pírata er mest, fara úr 12,7 prósent í júlí niður í 9,9 prósent nú. Viðreisn glatar 1,6 prósentustigi á milli mánaða, sígur niður í 10,7 prósent. Samfylking mælist nú með 13 prósent en naut 13,7 prósent fylgis fyrir mánuði. Óánægja með andstöðuna Samanlagt teljast þessir flokkar bróðurpartur stjórnarandstöðunnar. Hér er sérdeilis athyglisvert að í könnun Maskínu er langstærsta fylgishreyfingin einmitt fólgin í afstöðunni til starfa stjórnarandstöðunnar, ánægja með störf hennar fellur út 15,8 prósent í 10,4 prósent – eiginlega komin við frostmark. Enn sem komið er höfum við heyrt heldur lítið um afstöðu þessara flokka til framangreindra átaka á milli ríkisrekstrar og einkaframtaks í heilbrigðiskerfinu. Vissulega getum við ályktað að Samfylkingin vilji heldur byggja á auknum fjárframlögum úr ríkissjóði til Landspítalans og að Viðreisn sé ef til vill hallari undir einkarekstur. En í þessum málum höfum við nú samt ekki ennþá fengið fram sérlega skýra kosningastefnu. Sterk staða stjórnarflokka Ríkisstjórnarflokkarnir bæta allir við sig í ágústkönnun Maskínu. Hlutfallslega hlýtur Framsóknarflokkur mestu fylgisaukninguna á milli mánaða, fer úr 9,9 prósent í 12,6 prósent. Sjálfstæðisflokkur hækkar um tvö og hálft prósentustig á milli mánaða, fer úr 20,9 prósent í 23,4 prósent og ber höfuð og herðar yfir fylgi annarra flokka. Hér nýtur flokkurinn eflaust þess að frelsissjónarmið í sóttvarnarmálum hafa einkum heyrst úr röðum Sjálfstæðismanna um leið og flokkurinn í ríkisstjórn stendur jú að ströngum sóttvarnarráðstöfunum. Sjálfstæðisflokkur nær með öðrum orðum að rúma bæði sjónarmið þótt öndverð séu. Þá hefur flokkurinn verið í fararbroddi þeirra sem tala nú af vaxandi þunga fyrir aukinni aðkomu einkaframtaks í heilbrigðisþjónustu. Þrengist að (annars sterkri stöðu) VG Staða Vinstri Grænna er æði áhugaverð nú um stundir. Bætir við sig minnstu fylgi stjórnarflokkana, stendur nánast í stað með 14,2 prósent – upp um aðeins 0,1 prósent og því ekki marktækur munur. Nokkrir gagnstæðir kraftar toga hér samtímis, til dæmis þessir: Flokkurinn nýtur þess augljóslega að standa í stafni sóttvarnaráðstafanna og kjósendur hans virðast almennt hafa litlar athugasemdir við þær. En á samri stundu unir stór hluti kjósendanna sér illa í sambúðinni við Sjálfstæðisflokk og lítur því í aðrar áttir. Aukinheldur stendur VG frammi fyrir snaraukinni samkeppni frá vinstri, frá hinum nýja Sósíalistaflokki sem stöðugt sækir í sig veðrið og mælist nú nokkuð marktækt yfir þröskuldi, með 6,9 prósent. Gera verður ráð fyrir að drjúgur hluti fylgis þeirra komi frá VG. Sósíalistaflokkurinn gamli er jú einn forvera VG og því er augljós gangvegur þarna á milli. Nýi Sósíalistaflokkurinn hefur gagnrýnt ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur bæði fyrir þjónkun við auðvaldið í efnahagsmálum og sömuleiðis fyrir að grípa ekki til strangari tálmana. Sósíalistar sækja því fast að fylgi VG frá vinstri, hafa líkast til reytt frá þeim töluvert af þeim fylgi hinna róttæku. Samtímis má gera ráð fyrir að VG hafi laðað að sér nýtt fylgi frá fólki sem fremur leggur áherslu á stöðugleika. Fallbaráttan Enn eru ónefndir tveir flokkar sem mælast með minnst fylgi í könnun Maskínu. Miðflokkurinn stendur enn nokkurn vegin á þröskuldi og óvíst er hvort hann haldist yfir höfuð inni á þingi. Í þeim málum sem þessar kosningar virðast ætla að hverfast um hafa Miðflokksmenn ekki enn lýst nægjanlega skýrri stefnu svo hægt sé að taka hana til skoðunar hér. Flokkur fólksins mælist enn og aftur undir þröskuldi og virðist enn sem komið er ætla að lúta í lægra haldi í fylgisbaráttunni við Sósíalistaflokkinn, en báðir flokkar sækja jú um sumt á svipuð mið. Mælist nú með minnsta fylgi sitt í mánaðarlegum könnun Maskínu á þessu ári, með aðeins 4,2 prósent að þessu sinni. Baráttan er við borðið Að samanlögðu má kannski sjá að við stöndum nú frammi fyrir þeirri sérkennilegu stöðu, að einna skýrustu átakalínurnar í þessum kosningum liggi ekki síst á milli tveggja ríkisstjórnarflokka, annars vegar á milli VG sem vill snarbæta hið opinbera heilbrigðiskerfi og hins vegar Sjálfstæðisflokksins, sem vill laða að krafta einkaframtaksins að því í auknu mæli. Alþingiskosningar fara fram 25. september 2021. Fram að þeim mun fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar birta reglulega niðurstöður skoðanakannana Maskínu er snúa að kosningunum.
Alþingiskosningar fara fram 25. september 2021. Fram að þeim mun fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar birta reglulega niðurstöður skoðanakannana Maskínu er snúa að kosningunum.
Alþingiskosningar 2021 Mest lesið Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Fleiri fréttir Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Sjá meira