Fótbolti

Átján ára strákur í markinu fram yfir Ögmund

Valur Páll Eiríksson skrifar
Mady Camara skoraði og fékk rautt í sigri kvöldsins hjá Olympiakos.
Mady Camara skoraði og fékk rautt í sigri kvöldsins hjá Olympiakos. Dimitris Lampropoulos/Anadolu Agency via Getty Images

Ögmundur Kristinsson sat á varamannabekk Olympiakos er liðið vann 1-0 sigur á FK Neftchi frá Baku í Aserbaídsjan í 2. umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Átján ára gutti var á milli stanganna hjá Olympiakos á kostnað Ögmundar.

Mady Camara skoraði eina mark leiksins í kvöld á 29. mínútu en hann fékk svo að líta rautt spjald skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks. Mert Celik úr liði gestanna var vikið af velli um miðjan síðari hálfleik og luku liðin því leik 10 gegn 10.

Tékkneski landsliðsmarkvörðurinn Tomas Vaclik, sem er nýgenginn í raðir Olympiakos frá Sevilla, var ekki í leikmannahópi gríska liðsins í kvöld en þrátt fyrir það þurfti Ögmundur að gera sér bekkjarsetu að góðu í kvöld. Á milli stanganna stóð hinn 18 ára gamli Konstantinos Tzolakis. 

Ögmundur hefur aðeins spilað tvo deildarleiki fyrir gríska stórliðið frá því að hann var keyptur til þess frá AEL í Grikklandi síðasta sumar. Hann hefur verið varaskeifa fyrir Portúgalann José Sá sem er genginn í raðir Wolves til að fylla skarð Rui Patricio sem fór til Roma á Ítalíu.

Tzolakis virðist fyrir framan Ögmund í goggunarröðinni þar sem hann spilaði fimm deildarleiki í fyrra. Sé Ögmundur orðinn þriðji markvörður félagsins er ekki alls ólíklegt að hann hugsi sér til hreyfings í sumar.

Fleiri leikir voru á dagskrá í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Stórleikur kvöldsins var milli PSV Eindhoven frá Hollandi og Galatasaray frá Tyrklandi. Þeir hollensku unnu þar öruggan 5-1 heimasigur og eru langt komnir með að tryggja sæti sitt í næstu umferð. Ísraelinn Eran Zahavi skoraði þrennu fyrir PSV og Þjóðverjinn Mario Götze tvö.

Úrslit kvöldsins í forkeppni Meistaradeildarinnar:

Kairat Almaty 2-1 Rauða stjarnan

Malmö FF 2-1 HJK Helsinki

Mura 0-0 Ludogorets Razgrad

Slovan Bratislava 0-0 Young Boys

Legía Varsjá 2-1 Flora Tallinn

Olympiakos 1-0 FK Neftchi

PSV Eindhoven 5-1 Galatasaray




Fleiri fréttir

Sjá meira


×