Stöðvaði rannsókn sem kvensjúkdómalæknir óskaði eftir Hólmfríður Gísladóttir skrifar 1. júní 2021 08:10 Ef marka má frásagnir kvenna í hópnum Aðför að heilsu kvenna, hafa sumar þurft að bíða í tólf vikur eftir svörum og bíða enn. Bryndís Sigurðardóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti sín við Kristján Oddsson, verkefnastjóra Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún segir Kristján hafa hafnað því að láta rannsaka leghálssýni sem kvensjúkdómalæknir hennar tók fyrr í þessum mánuði.
Í ágúst síðastliðnum fór Bryndís í sýnatöku og fékk þau svör 21 degi seinna að vægar frumubreytingar hefðu greinst og að hún væri með HPV veiruna. Var henni ráðlagt að koma aftur í sýnatöku eftir sex mánuði. Í janúar fór Bryndís því aftur í sýnatöku. Þá hafði heilsugæslan tekið við umsjón leghálsskimana af Krabbameinsfélaginu og biðin eftir svörum orðin 121 dagur. Svörin voru misvísandi. „Ég fæ ekki svar fyrr en núna, í kringum 20. maí. Þá var ég búin að fá munnlegar upplýsingar frá heimilislækninum í gegnum síma, sem sagði að ég væri með HPV og ætti að koma aftur eftir ár,“ segir Bryndís. Hún ákvað að skella sér strax aftur í sýnatöku, þar sem henni þóttu niðurstöðurnar ekki traustvekjandi og bað kvensjúkdómalækninn sinn gagngert um að biðja um frumurannsókn. Skömmu seinna fékk hún þau svör frá sama kvensjúkdómalækni að ekkert hefði greinst í sýninu frá því í janúar og hún þyrfti ekki að koma aftur fyrr en eftir fimm ár, en í ljós kom að um mistök var að ræða og rétt hjá heimilislækninum að hún hefði greinst með HPV. Hinn 20. maí fékk hún þriðja svarið varðandi janúarsýnið, á island.is, en þar stóð að HPV greining hefði leitt í ljós að hún væri með HPV. Ekkert stóð hins vegar um það hvort sýnið hefði verið frumuskoðað. Brást reiður við kvörtunum Bryndís, sem hafði sem fyrr segir greinst með frumubreytingar í ágúst síðastliðnum, freistaði þess nú að fá sem mestar upplýsingar um sýnið sitt frá í janúar og leitaði meðal annars til Samhæfingarstöðvarinnar. Sú umleitan hennar endaði með því að hún fékk símtal frá Kristjáni. Hún segir hann hafa brugðist reiðilega við þegar hún kvartaði yfir framkvæmd leghálsskimana frá því að heilsugæslan tók við verkefninu. „Hann sagði þetta besta skipulagið á Norðurlöndunum og að þetta væri svo skilvirkt og frábært fyrirkomulag. En það munaði hundrað dögum á því hvað ég var lengi að fá niðurstöðurnar,“ segir Bryndís. Hún var sömuleiðis ákveðin, enda voru niðurstöðurnar í ágúst þess eðlis að hún vildi vera fullviss um að hún ætti ekki á hættu að greinast með lífshættulegan sjúkdóm, eins og hún orðar það sjálf. „Þetta endar með því að hann er orðinn rosalega reiður. Ég vildi fá að vita hvort sýnið sem var tekið 12. maí væri farið til Danmerkur og hvenær ég fengi svör. En hann stoppar sýnið og ætlar ekki að láta rannsaka það vegna ofskimunar,“ segir Bryndís. Hún vísar í tölvupóst frá Kristjáni, sem hún birti í Facebook-hópnum „Aðför að heilsu kvenna“ en þar segist Kristján hafa haft samband við kvensjúkdómalækninn hennar, sem hafi ekki getað „staðfest læknisfræðilega nauðsyn“ þess að rannsaka sýnið sem var tekið nú í maí. „Það er ekki verið að leita að kvefi“ Spurð segist Bryndís hafa rætt það við kvensjúkdómalækninn sinn að sýnið yrði bæði HPV-greint og frumuskoðað. Bryndís segir hann síður en svo ánægðan með inngrip Kristjáns. „Hann hefur bara ekkert um þetta að segja, virðist vera,“ segir Bryndís. „Ef ég væri að heimta krabbameinsskimun mánaðarlega væri það eitt en eins og skipulagið hefur verið á þessu undanfarið er ekki skrýtið að maður vilji fá staðfestingu á því að allt sé í lagi.“ Bryndís segist ekkert botna í því að samningurinn við Krabbameinsfélagið hafi ekki verið framlengdur þegar ljóst var í hvað stefndi um áramótin. „Það er ekki verið að leita að kvefi, það er verið að leita að krabbameini,“ segir hún. Sjálf sé hún ekki smeyk en hún vilji stíga fram fyrir aðrar konur. „Ef ég væri hrædd þá væri ég komin á kvíðastillandi eftir þetta allt saman.“ Vísir hefur sent erindi til Embætti landlæknis þar sem meðal annars er óskað svara við því hvort Kristján hafi heimild til að taka fram fyrir hendurnar á kvensjúkdómalæknum með þessum hætti og hvort honum sé heimilt að synja konum um skimun og/eða rannsóknir almennt.
Skimun fyrir krabbameini Heilsugæsla Heilbrigðismál Tengdar fréttir Persónuvernd telur öryggisáhættu geta skapast við endurmerkingu leghálssýna við flutning milli landa Persónuvernd telur að mögulega muni reyna á álitaefni varðandi öryggi í tengslum við notkun danskra kennitalna og tengsl þeirra við íslenskar kennitölur, þegar leghálssýni eru flutt úr landi til rannsókna í Danmörku. 21. maí 2021 14:57 Landlæknir telur Landspítala geta sinnt leghálssýnarannsóknum Embætti landlæknis segir Landspítala eiga að geta sinnt rannsóknum á leghálssýnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Rannsóknirnar eru nú framkvæmdar í Danmörku en fagsamtök heilbrigðisstarfsmanna hafa kallað eftir því að þær verði fluttar heim. 21. maí 2021 09:06 Konur búa nú við kvíðann sem átti að fyrirbyggja: „Lítilsvirðandi og niðurlægjandi fyrir íslenskar konur“ „Þetta er ótrúlega slæm tilfinning,“ segir Jacqueline Gudgeirsson um biðina eftir niðurstöðum úr leghálssýnarannsóknum. Hún er meðal þeirra sem hafa greint frá reynslu sinni í Facebook-hópnum „Aðför að heilsu kvenna“ en hún fór í fyrstu sýnatöku 1. október síðastliðinn og bíður enn endanlegra niðurstaða. 11. maí 2021 13:23 Viðbrögð heilsugæslunnar við svörum Landspítala: Forstjórinn kannast ekki við eigin tölvupóstsamskipti Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur skilað heilbrigðisráðuneytinu viðbrögðum vegna jákvæðra svara Landspítala um að taka við rannóknum á leghálssýnum vegna skimunar eftir leghálskrabbameinum. 3. maí 2021 13:14 Svartíminn átta vikur á næstunni: Kenna Krabbameinsfélaginu og Covid-19 um langan biðtíma Svartími vegna leghálssýna verður átta vikur á næstunni, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að vel gangi að koma sýnum út og svör berist innan þriggja vikna frá komu á rannsóknarstofuna. 29. apríl 2021 10:24 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira
Persónuvernd telur öryggisáhættu geta skapast við endurmerkingu leghálssýna við flutning milli landa Persónuvernd telur að mögulega muni reyna á álitaefni varðandi öryggi í tengslum við notkun danskra kennitalna og tengsl þeirra við íslenskar kennitölur, þegar leghálssýni eru flutt úr landi til rannsókna í Danmörku. 21. maí 2021 14:57
Landlæknir telur Landspítala geta sinnt leghálssýnarannsóknum Embætti landlæknis segir Landspítala eiga að geta sinnt rannsóknum á leghálssýnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Rannsóknirnar eru nú framkvæmdar í Danmörku en fagsamtök heilbrigðisstarfsmanna hafa kallað eftir því að þær verði fluttar heim. 21. maí 2021 09:06
Konur búa nú við kvíðann sem átti að fyrirbyggja: „Lítilsvirðandi og niðurlægjandi fyrir íslenskar konur“ „Þetta er ótrúlega slæm tilfinning,“ segir Jacqueline Gudgeirsson um biðina eftir niðurstöðum úr leghálssýnarannsóknum. Hún er meðal þeirra sem hafa greint frá reynslu sinni í Facebook-hópnum „Aðför að heilsu kvenna“ en hún fór í fyrstu sýnatöku 1. október síðastliðinn og bíður enn endanlegra niðurstaða. 11. maí 2021 13:23
Viðbrögð heilsugæslunnar við svörum Landspítala: Forstjórinn kannast ekki við eigin tölvupóstsamskipti Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur skilað heilbrigðisráðuneytinu viðbrögðum vegna jákvæðra svara Landspítala um að taka við rannóknum á leghálssýnum vegna skimunar eftir leghálskrabbameinum. 3. maí 2021 13:14
Svartíminn átta vikur á næstunni: Kenna Krabbameinsfélaginu og Covid-19 um langan biðtíma Svartími vegna leghálssýna verður átta vikur á næstunni, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að vel gangi að koma sýnum út og svör berist innan þriggja vikna frá komu á rannsóknarstofuna. 29. apríl 2021 10:24