Af viðskiptum við eftirlitskerfi Matvælastofnunar – Annar hluti Valur Freyr Jónsson skrifar 4. maí 2021 15:00 Ég held hér áfram umfjöllun um hvernig það er að eiga hross á höfuðborgarsvæðinu, bæði úti og inni og eiga þar allt undir sérkennilegri framgöngu eftirlitsmanna MAST. Það er af nógu að taka og held varðandi eltingaleik Matvælastofnunar og furðulega framkomu við mig og aðra. Merkilegur fundur haldinn á Selfossi Undir vor þetta sama ár hringdi ég í Mast á Selfossi og náði tali af einhverjum Viktori þægilegum manni og kurteisum. Enginn hroki þar. Ég bað hann að senda mér prentaðar upplýsingar og skýrslur um afskipti Matvælastofnunar af mér sem til væru. Hann brást vel við og sendi mér í pósti viku seinna þykkt umslag með mörgum blöðum. Þar gaf ýmislegt á að líta, ýmislegt sem ég hafði ekki hugmynd um einsog til dæmis það að haldinn hafði verið fundur á Selfossi þar sem fundarefnið var ég Valur Freyr Jónsson. Fundargerðin er stutt og svo hljóðandi: ,,Þar sem ekkert er út á hrossin að setja hjá Val mun verða erfitt að kæra hann, þess í stað ákveður fundurinn að farið verði í girðinguna aftur og aftur til að athuga hvort ekki komi tilefni til ákæru.“ Á fundinn mættu Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir, Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma og tveir eftirlitsdýralæknar úr Reykjavík. Ennfremur voru þarna hlutar af skýrslum um kaup tveggja bænda í Skagafirði á tveimur notuðum dráttarvélum frá Bretlandi. Nokkuð sem mér fannst mér ekki koma við. Einnig var þarna afrit af skýrslu um það að ég hefði ekki fjarlægt tunnurnar sem hrossin annars komu aldrei nálægt og það borið undir Sigríði Björnsdóttir ásamt fleiru hvað hægt væri að gera í viðureigninni við svona vandræðamann. Taldi hún lítið hægt að gera við mínum aðferðum við hrossahald. En ef hrossin fengju hrossasótt (vegna tunnanna) þá væri sjálfsagt að kæra. - Í hvaða vegferð er þetta fólk..? Til mín hringir kona Eins og oft hefur komið fyrir þá snjóaði eina nóttina að hausti til í Reykjavík. Það varð alhvít jörð í sólarhring eða rúmlega það. Þá hafa margir vegfarendur um Vesturlandsveginn sjálfskipaðir sérfræðingar orðið vitlausir þegar þeir sáu hrossin mín við þessar hörmungar aðstæður, þar með hefur sennilega rignt inn til MAST símhringingum og tölvupóstum. Nema hvað? Til mín hringir kona, Sonja sem tafði ekki við neina kurteisi heldur spurði formálalaust hvenær ég ætlaði að taka hrossin. Ég sagði henni að það stæði ekki til á næstunni enda engin þörf á því. Þá tilkynnti hún mér það að þá yrðu þau fjarlægð á minn kostnað, sennilega hefur hún ætlað að koma þeim í hús í Víðidalnum og auðvitað á minn kostnað. Þar er einhver sem græðir vel á svona uppákomum, fyrir utan þá sem eiga bílana og kerrurnar sem þarf til flutningana. Þá fauk í mig og ég slökkti á símanum. Þá hefur hún klagað mig fyrir Konráði því hann hringdi rétt á eftir og vissi auðheyrilega ekki hvað hann átti að segja. Kurteis maður Konráð sem hefur vafalaust gert sér grein fyrir að þetta var óþarfa uppþot en stendur með sínu fólki og mun ég víkja að því síðar. Þar sem ég hafði engan áhuga á því að leysa hrossin út fyrir marga tugi þúsunda stykkið til þess að sleppa þeim svo í sömu girðinguna átta hrossum þá sótti ég hópinn og setti inn í hús. Þorðu ekki að blanda sér í mál er tengdust Mast Eftir þetta fer ég að hringja í dýralækna til þess að fá úttekt á hrossunum og holdstigun. Ég byrjaði á mikilsmetnum dýralæknum sem ég þekkti í Reykjavík og Kópavogi og síðan hvern á fætur öðrum í Hafnarfirði, Selfossi og Hellu. Allir tóku erindinu mjög vel þangað til Matvælastofnun var nefnd. Þá var það ekki hægt. Að lokum var mér bent á Guðmar í Sandhólaferju og hann þorði. Hann mætti í hesthúsið eftir tvo daga og sagði mér að koma þeim á haga aftur. Hann skyldi sjá um Matvælastofnun. Ég fór með hrossin í sömu girðinguna á Blikastöðum aftur og þar voru þau allan veturinn á ágætum haga fram í febrúarlok eftir það á fullri heygjöf fram í græn grös. Og það fékk ekkert af þeim hrossa sótt útaf nokkrum ryðguðum tunnum. Merkilegt nokk. Fljótlega eftir þetta var mér sagt upp leigunni á þessu landi sem þá var komið í eigu Arion banka. Ástæðan sögð sú að þetta ætti að vera göngusvæði Mosfellsbæinga eins trúlegt og það er. Frekar að það hafi verið að undirlagi Grétars Hanssonar af sérstökum ástæðum, sem sumir telja sig vita, en þarna kemur aldrei nokkur maður. Eftir þetta fæ ég leigt afbragðsland í Dalsmynni á Kjalarnesi grasgefið og skjólgott. Annarsvegar 30 hektara sem ég nota yfir hásumarið og hinsvegar 50 hektara sem ég nota til haust og vetrarbeitar. Kjalarnesið er þekkt fyrir rok og þar af leiðandi virðist Dalsmynni ekki vera ákjósanlegt land til vetrarbeitar en það er öðru nær. Þegar veður eru sem verst þá sjást yfirleitt engin hross af veginum því að þá eru þau niður á sjávarbökkum í ágætum skjólum og mun betra veðri. Það er sennilega ástæðan fyrir mun minni afskiptum allskonar sérfræðinga. Um miðjan janúar 2017 í leiðinda slydduveðri, þvælist þarna inn í girðinguna í leyfisleysi kona, Lísa Lotta held ég að hún hafi heitið, til þess að athuga tryppið hennar Jónínu vinkonu hennar. Í þessu skítaveðri sýndist henni hrossin öll vera að drepast úr vesöld. Eitthvað þvældist hún um girðinguna því hún fann brúnskjótta klárinn sem hvarf skömmu áður og var mikið búið að leita að. Þarna hafði hann drepist í skurði þar sem síst var búist við. Nú væri hægt að græða feitt á dýraníðingnum frá Blikastöðum Þessi kona lét ekki þar við sitja heldur hringdi í Mast til þess að fá ráðleggingar um það hvað hægt væri að gera til að bjarga þessum hrossum. Þar á bæ hefur þessum upplýsingum væntanlega verið tekið fagnandi, nú væri hægt að græða feitt á dýraníðingnum frá Blikastöðum, með tilvísanir í hinar ýmsu reglugerðir. Stanslaust eftirlit, hótanir og reikninga útgáfa allan veturinn, það gefur vel af sér fyrir stofnun sem alltaf vantar peninga. En Lísa Lotta, hún tók sig til og keypti tvær heyrúllur í Brautarholti og lét vinnumanninn þar koma með þær og dreifa úr þeim innan við hliðið. Atburðarásin það sem eftir var vetrar er efni í eitthvað mikið meira en það sem ég skrifa hér, geri það síðar. Ekkert af þessu fólki hvorki tilkynnandinn né eftirlits sérfræðingarnir frá Mast virðast hafa hugsað út í það hversu alvarlegt það er að vera með 60 hross á haglausu landi um miðjan janúar. Það að ætla nokkrum manni það að halda hross og selja hagagöngu við þessar aðstæður kallar á nána skoðun á eftirlitinu. Og þetta á að heita í nafni dýravelferðar. Ég ætla að hafa hér eftir það sem í skýrslunni eru kallaðar aðrar upplýsingar. „Valur Freyr Jónsson hefur spilduna á leigu og tekur hross í hagagöngu. Hann telst því umráðamaður þeirra hrossa sem eru á spildunni.“ - Þetta vissi ég. Ég vissi líka að það var ekkert athugavert við hrossin og þau höfðu nógan haga, enda janúar nýbyrjaður en þá eins og búið var að segja mér og ég margbúinn að sjá þá er farið að eltast við tittlingaskít sem engu skiptir. Frestur til að fjarlægja alla slysahættu úr umhverfi hrossanna, eigi síðar en 18 janúar. Fundu einhversstaðar gaddavírsflækju og bárujárn en sögðu ekki frá hvar Þau fundu einhversstaðar gaddavírsflækju en sögðu ekki frá hvar, því þau voru þarna til að afla tekna, og bárujárn sem ég veit ekki hvar er. Frestur til að koma fóðri til hrossanna til 23 janúar. Ég byrjaði að gefa hrossunum 18 mars. Þá voru orðin 27 i girðingunni og enn í góðum holdum. Frestur til að koma upp viðunandi skjóli eða fjarlægja þau af spildunni fyrir 30 janúar. Í framhaldinu er talað um hættulegt gjafasvæði. Ég veit ekki hvar þau hafa ákveðið að það væri. Í þessari furðulegu skýrslu segir ennfremur: „Á spildunni eru veggir gamals húss.“ - Sem þau staðhæfa að sé of lítið skjól fyrir 60 hross sem er rétt. Í vondu veðri eru engin hross svona ofarlega í landinu. Þótt þau ætli mér hálfan mánuð til að byggja við kofann þá hefur það aldrei komið til greina enda ekki þörf á né leyfi til. Síðan þessi vanalega fullyrðing að beitin sé nánast búin. Án þess að nenna að kynna sér það. Ennfremur allskonar leiðbeiningar, svo sem ágætar fyrir krakka sem fá hross í fermingargjöf. Holdafar og húð og hárafar sagt í lagi á vanfóðruðum klár Það tókst að ná skjótta klárnum upp úr skurðinum þegar fært var vegna bleytu og koma honum löglega í Sorpu. Bent er á að hófhirða, holdafar og húð og hárafar sé í lagi. Hvernig sem staðið hefur á því. Til þess að fara fljótt yfir sögu þá var næsta eftirlitsferð viku eða hálfum mánuði seinna og allt endurtekið frestur, viðbótarfrestur, tilkynningar og hótanir. Ég gerði ekki neitt enda ekki þörf á því. Hrossin höfðu það nokkuð gott, ég lét fjarlægja tryppin og folaldsmerarnar og mörg hross voru tekin á hús og járnuð bæði frá mér og öðrum einsog vanalega í janúar og febrúar. Höfundur er rútubílstjóri. freyshestar@hotmail.com Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Dýraheilbrigði Stjórnsýsla Tengdar fréttir Af viðskiptum við eftirlitskerfi Matvælastofnunar Ég ætla að fara hérna yfir það á gagnrýninn hátt hvernig það er að eiga hross á höfuðborgarsvæðinu, bæði úti og inni. Sérstaklega mun ég taka til umfjöllunar eltingaleik Matvælastofnunar og furðulega framkomu starfsfólks stofnunarinnar við mig og aðra. 3. maí 2021 15:00 Mest lesið Þjónusturof hefst í dag Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun „Mér sýnist Inga Sæland fá talsvert út úr þessu“ Sigurjón Arnórsson Skoðun Hvað með dansinn? Lilja Björk Haraldsdóttir Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun Hallgrímur, málið snýst því miður ekki bara um kebab Snorri Másson Skoðun Viðhorf sem mótar veruleikann – inngilding á orði og á borði Sóldís Birta Reynisdóttir Skoðun Skortur á metnaði í loftslagsmálum Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun Spilavíti er og verður spilavíti Tryggvi Rúnar Brynjarsson Skoðun Verjum frelsið og mannréttindin Sigurjón Njarðarson Skoðun Ég er eins og ég er – um heilbrigðisþjónustu við trans fólk Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Tími til kominn að styðja öll framúrskarandi ungmenni Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Hvað með dansinn? Lilja Björk Haraldsdóttir skrifar Skoðun Mótórhjólasamtök á Íslandi – hvers vegna öll þessi læti? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Viðhorf sem mótar veruleikann – inngilding á orði og á borði Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun „Mér sýnist Inga Sæland fá talsvert út úr þessu“ Sigurjón Arnórsson skrifar Skoðun Árangur hefst hér. Með þér. Guðrún Högnadóttir skrifar Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Þjónusturof hefst í dag Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Verjum frelsið og mannréttindin Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Spilavíti er og verður spilavíti Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar Skoðun Skortur á metnaði í loftslagsmálum Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Eru stjórnarandstæðingar viljandi að misskilja samsköttun? Þórhallur Valur Benónýsson skrifar Skoðun Orðræða mótar menningu – og menningin mótar okkur öll Jóhanna Bárðardóttir skrifar Skoðun Eitt spilakort, betri spilamenning – er skaðaminnkandi Ingvar Örn Ingvarsson skrifar Skoðun Sameining sem eflir íslenskan landbúnað Egill Gautason skrifar Skoðun Konur sem stinga hvor aðra í bakið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Fjölbreytileiki er styrkleiki Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Það er list að lifa með krabbameini Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Um kynjafræði og pólítík Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Við fylgjum þér frá getnaði til grafar Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ef þið bara hefðuð séð heiminn út frá mínum augum: Börn & ADHD Stefán Þorri Helgason skrifar Skoðun 112. liðurinn í aðgerðaáætlun í menntamálum? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson skrifar Skoðun Konur á örorku Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Drambið okkar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Við vitum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Ekki sama hvaðan gott kemur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Börn í meðferð eiga rétt á fagfólki orð duga ekki lengur! Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Greindarskerðing eða ofurgáfur með gervigreind Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Að hafa hemil á nýjum ófjármögnuðum útgjöldum er lykillinn að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga Jón Ingi Hákonarson skrifar Sjá meira
Af viðskiptum við eftirlitskerfi Matvælastofnunar Ég ætla að fara hérna yfir það á gagnrýninn hátt hvernig það er að eiga hross á höfuðborgarsvæðinu, bæði úti og inni. Sérstaklega mun ég taka til umfjöllunar eltingaleik Matvælastofnunar og furðulega framkomu starfsfólks stofnunarinnar við mig og aðra. 3. maí 2021 15:00
Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun
Skoðun Viðhorf sem mótar veruleikann – inngilding á orði og á borði Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar
Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley skrifar
Skoðun Eru stjórnarandstæðingar viljandi að misskilja samsköttun? Þórhallur Valur Benónýsson skrifar
Skoðun Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Að hafa hemil á nýjum ófjármögnuðum útgjöldum er lykillinn að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga Jón Ingi Hákonarson skrifar
Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun