Líkt og með ástina þá spyr sönn vinátta hvorki um stétt né stöðu. En hvað með kyn - skiptir það máli?
Í öllum samböndum getur afbrýðisemi verið eitt af þeim vandamálum sem er nátengt vantrausti og óöryggi. Þegar kemur að gagnkynhneigðum samböndum getur vinátta við manneskju af gagnstæðu kyni reynst einhverjum samböndum viðkvæm.
Á dögunum spurðu Makamál lesendur Vísis um tilfinningar varðandi það ef maki á náinnvin, eða trúnaðarvin, af gagnstæðu kyni. Rúmlega þrjú þúsund manns tóku þátt í könnuninni sem var kynjaskipt.
Þriðjungur kvenna segir það ekki trufla sig ef maki á trúnaðarvin af gagnstæðu kyni á móti 44% karla en eins og sjá má á niðurstöðunum hér fyrir neðan eru það konur sem virðast eiga ögn erfiðara með það að makinn eigi aðra konu sem trúnaðarvin eða alls 66% á móti 56% karla.
Það má því segja að samkvæmt þessum niðurstöðum að meirihluti lesenda telji vináttu maka við manneskju af gagnstæðu kyni að einhverju leyti óviðeigandi.
Niðurstöður*
Konur:
Það truflar mig ekki - 34%
Mér finnst það óviðeigandi ef vináttan er ný - 41%
Mér finnst það alltaf óviðeigandi - 25%
Karlar:
Það truflar mig ekki - 44%
Mér finnst það óviðeigandi ef vináttan er ný - 36%
Mér finnst það alltaf óviðeigandi - 20%
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.