Tíu leikmenn nýliðanna lögðu toppliðið að velli Arnar Geir Halldórsson skrifar 10. apríl 2021 13:30 Dallas nýbúinn að loka toppliðinu vísir/Getty Leeds United gerði sér lítið fyrir og skellti toppliði Manchester City í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Pep Guardiola hóf leik með leikmenn á borð við Kevin De Bruyne, Ruben Dias og Rodri á varamannabekknum enda mikið álag á leikmönnum liðsins þessa dagana. Stuart Dallas sá til þess að Leeds færi með eins marks forystu í leikhléið því hann skoraði fyrsta mark leiksins á 42.mínútu. Skömmu síðar urðu gestirnir fyrir áfalli þegar Liam Cooper, fyrirliði Leeds, fékk að líta rauða spjaldið fyrir brot sem var skoðað af VAR í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Einum færri lögðust gestirnir í skotgrafir í síðari hálfleik en Ferran Torres náði að jafna metin fyrir Man City á 76.mínútu og bjuggust flestir við að heimamenn myndu ná inn sigurmarki á lokamínútunum. Það varð svo sannarlega ekki raunin því Dallas skoraði annað mark sitt og tryggði nýliðunum glæstan sigur með marki í uppbótartíma. Lokatölur 1-2 fyrir Leeds. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti