Lífið

Jason Derulo að verða pabbi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Jason Derulo (31 árs) og Jena Frumes (26 ára) eru dugleg að birta myndbönd af sér saman á TikTok. Þau tilkynntu að þau ættu von á barni með fallegum myndum og myndböndum frá Bahama eyjum.
Jason Derulo (31 árs) og Jena Frumes (26 ára) eru dugleg að birta myndbönd af sér saman á TikTok. Þau tilkynntu að þau ættu von á barni með fallegum myndum og myndböndum frá Bahama eyjum. Skjáskot

Tónlistarmaðurinn Jason Derulo á von á barni með kærustu sinni, fyrirsætunni Jenu Frumes. 

Frumes birti fallega mynd af þeim á Instagram með textanum „Mamma og pabbi.“ Derulo tilkynnti gleðifréttirnar einnig á Instagram með krúttlegu myndbandi frá Bahama eyjum. Það fylgdi ekki sögunni hvenær barnið er væntanlegt í heiminn. Við færsluna skrifar hann 

„Ég gæti ekki verið spenntari fyrir þessum nýja kafla í lífi okkar.“ 

Þau kynntust fyrst í ræktinni og byrjaði parið svo að hittast skömmu áður en heimsfaraldurinn skall á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.