Hjörtur hafði betur gegn Aroni og Karólína lék í enn einum sigri Bayern Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. mars 2021 17:01 Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn fyrir Bröndby sem vann þægilegan 3-0 sigur. Vísir/Getty Bröndby vann öruggan 3-0 sigur á OB í dönsku úrvalsdeildinni þar sem tveir íslenskir leikmenn voru í eldlínunni. Þá spilaði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir síðustu mínúturnar í öruggum 3-0 sigri Bayern München.
Aron Elís Þrándarsson og Hjörtur Hermannsson voru báðir í byrjunarliðum liða sinna er OB tók á móti Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Gestirnir frá Bröndby unnu einkar sannfærandi sigur en leiknum lauk með 3-0 sigri gestanna. Öll komu þau í fyrri hálfleik. Mikael Uhre gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu á aðeins nítján mínútum. Hann kom Bröndby yfir á 20. mínútu leiksins, tvöfaldaði forystuna fimmtán mínútum síðar og tryggði svo sigurinn með þriðja markinu á 39. mínútu. Jesper Lindstrom lagði öll þrjú mörkin upp. Bæði Aron Elís og Hjörtur léku allan leikinn. Bröndby er sem fyrr á toppi deildarinnar, nú með 44 stig, á meðan OB er í 9. sæti með 25 stig. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn af bekknum undir lok leiks í þægilegum sigri Bayern München á Essen í dag. Lokatölur þar einnig 3-0 en Karólína Lea kom inn af bekknum á 84. mínútu leiksins. Landsliðskonan er hægt og rólega að vinna sig inn í lið Bayern sem trónir sem fyrr á toppi þýsku deildarinnar með fullt hús stiga og virðist aðeins tímaspursmál hvenær liðið tryggir sér titilinn. Bayern er með 48 stig að loknum 16 umferðum en þar á eftir kemur Wolfsburg með 43 stig. Karólína Lea og stöllur hennar í Bayern stefna hraðbyr á þýska meistaratitilinn.Bayern
Fótbolti Þýski boltinn Danski boltinn Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Ofurhlaupari lést á skoska hálendinu Sport Fleiri fréttir Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Þorsteinn og Glódís sátu fyrir svörum fyrir leik við England Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Búningsklefi FC Basel eyðilagðist í bruna Al Hilal ekki lengur í eigu ríkissjóðsins Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Messi keypti spænskt fótboltafélag Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Forest sló tíu Porto-menn út og mætir Villa í undanúrslitum NSÍ Runavík heldur áfram góðri byrjun undir stjórn Sigga Ragga Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda „Hann mun líklega missa starfið, án þess að eiga það skilið“ Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Messi lögsóttur fyrir að spila ekki vináttuleik Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Sjá meira