Endurskapa hverfandi jöklana í kringum Höfn Kjartan Kjartansson skrifar 15. mars 2021 07:00 Dróni myndar Skálafellsjökul. Loftmyndirnar voru lagðar yfir hæðarlíkan ásamt eldri myndum. Þannig var hægt að endurskapa jöklana í þrívídd eins og þeir voru fyrir árum og áratugum. Dr. Kieran Baxter/Háskólinn í Dundee Tölvulíkön og drónatækni gerðu íslenskum og skoskum vísindamönnum kleift að endurskapa jökla í kringum Höfn í Hornafirði eins og þeir litu út fyrir fjörutíu og allt að 75 árum í nýrri stuttmynd. Á sama tíma sýna myndirnar glöggt hversu stórfelldar breytingar hafa orðið á jöklunum með áframhaldandi hnattrænni hlýnun af völdum manna.
Sögulegar og samtímaloftmyndir af sex jöklum varpa ljósi á þær stórtæku breytingar sem eru á verða á umhverfinu í stuttmyndinni „Eftir ísinn“ [e. After Ice]. Myndin er afrakstur fjögurra ára vinnu þeirra Þorvarðar Árnasonar, forstöðumanns rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði, og Kierans Baxter, kennara og vísindamanns í samskiptahönnun við Dundee-háskóla á Skotlandi. Baxter vann að því að endurskapa löngu horfin hús á þekktum minjastöðum þegar þeir Þorvarður kynntust haustið 2017. Þeir þróuðu með sér þá hugmynd af gera það sama fyrir jökla á suðausturlandi. Þorvarður segir í samtali við Vísi að Baxter hafði þá löngu áður þróað með sér Íslandsbakteríu og ástríðu fyrir jöklum þegar hann ferðaðist með ljósmyndaranum föður sínum um landið sem barn. Hann hefur meðal annars notað myndir föður síns af Skálafellsjökli í vinnu sinni. Til þess að hverfa aftur til fortíðar notaði Baxter loftmyndir sem höfðu verið teknar af Breiðamerkurjökli, Fjallsjökli, Fláajökli, Heinabergsjökli, Hoffellsjökli og Skálafellsjökli á 20. öldinni úr safni Landmælinga Íslands sem var gert aðgengilegt á netinu fyrir nokkrum árum. Myndirnar lagði hann ofan á hæðarlíkan, þvívíddartölvulíkan, sem gerði honum kleift að endurskapa landslagið eins og það var þegar loftmyndirnar voru teknar. Í samtímanum tóku þeir Þorvarður og Baxter drónamyndir og kortlögðu flugleiðir drónans með GPS-hnitum. Með þeim hnitum gat Baxter svo búið til nokkurs konar sýndarflug yfir endursköpuðu landslagi jöklanna í fortíðinni í hæðarlíkaninu. Þannig gat hann klippt hnökralaust á milli mynda sem voru teknar með margra áratuga millibili. „Þess vegna fær hann þessar tilfærslur sem eru svo ofsalega sléttar á milli mynda sem voru raunverulega teknar núna á síðustu árum og mynda eins og þetta hefði litið út ef hann hefði átt dróna árið 1982 eða 1945,“ segir Þorvarður. Í spilaranum hér fyrir neðan má sjá stuttmyndina „Eftir ísinn“. „Svakalegar“ breytingar á skömmum tíma Breytingarnar á jöklunum sem sjást í myndinni eru sláandi jafnvel þó að hop íslenskra jökla sé vel þekkt staðreynd. Þulur myndarinnar lýsir því hvernig Fjallsjökull hefur tapað fimm ferkílómetrum af flatarmáli sínu frá 1982. Heinabergsjökli líkir þulurinn við blöðru sem lekur en jökullinn hefur þynnst um hundrað metra frá 1989. Rannsókn íslenskra jöklafræðinga sem birtist í vetur bendir til þess að um helmingur ísmassataps íslenskra jökla hafi orðið frá haustinu 1994 til haustsins 2019, á bilinu 220-260 milljarða tonna, nærri því tíu milljarðar tonna á hverju ári. Jöklarnir hafa þannig tapað nærri því 16% af rúmmáli sínu á tímabilinu. Um helmingur ístaps íslenskra jökla frá litlu-ísöld hefur átt sér stað undanfarin þrjátíu ár og tengist það losun manna á gróðurhúsalofttegundum órjúfanlegum böndum. Einna mest sláandi er samanburðurinn á Breiðamerkurjökli og Jökulsárlóni sem sést í upphafi myndarinnar. Á mynd frá 1945 nær jökullinn langleiðina að sjó með tiltölulega litlum kraga vatns fyrir framan hann. Í nútímanum hefur jökullinn hopað langt inn í land og eftir stendur dýpsta stöðuvatn landsins. „Breytingarnar verða svakalegar þegar maður horfir á þá með fimm, tíu, hvað þá tuttugu ára millibili,“ segir Þorvarður um hop jöklanna. Loftmyndir sem voru teknar af Breiðamerkurjökli árið 1982 og 2020 sýna hversu mikið jökullinn hefur hopað og Jökulsárlón stækkað. Það er tiltölulega smátt efst í vinstra horni efri myndarinnar. Það teygir sig langt inn í land á myndinni sem var tekin 38 árum síðar.Landmælingar Íslands/Dr. Kieran Baxter/Háskólinn í Dundee Flestar myndanna sem þeir Baxter nota eru úr myndaröð sem náðist af jöklunum í kringum Höfn í góðviðrisviku árið 1982. Fyrir vikið tókst þeim að endurskapa jöklana eins og þeir voru fyrir rétt tæpum fjörutíu árum. Til samanburðar eru loftmyndir sem Baxter og Þorvarður hafa tekið tvisvar á ári frá 2017. „Við erum farnir að sjá á sumum stöðum mjög mikinn mun á milli einstakra ára,“ segir Þorvarður og vísar sérstaklega til Heinabergsjökuls og Hoffellsjökuls. Kieran Baxter flýgur dróna við Heinabergsjökul.Dr. Alice Watterson/Háskólinn í Dundee Næsta verkefni að myndgera framtíðina Stuttmyndin er ekki aðeins aðgengileg öllum á netinu heldur geta fjölmiðlar, skólar, aðrir kvikmyndagerðarmenn og hver sem er sótt efni úr henni til eigin nota, allt í anda opins aðgangs. Þá hefur myndin þegar verið samþykkt inn á eina kvikmyndahátíð nú í vor. Þorvarður Árnason, forstöðumaður rannsóknaseturs Háskóla Íslands.Atli Freyr Scheving „Við viljum bara að þetta nýtist til að skapa upplýsta umræðu um hamfarahlýnun,“ segir Þorvarður. Efnið sem þeir Baxter hafa safnað saman fyrir stuttmyndina verði í framtíðinni gagnabanki sem aðrir geta leitað í eftir tuttugu til þrjátíu ár eins og þeir gerðu sjálfir með myndir Landmælinga. „Við erum að safna efni um jöklana eins og þeir litu út á meðan þeir voru ennþá til ef það má orða það svoleiðis,“ segir Þorvarður. Þeir Baxter eru hvergi nærri hættur. Þá dreymir nú um að vinna annað verkefni á svipuðum grunni en nú til þess að skyggnast inn í framtíðina. „Að reyna að forskapa jöklana eins og þeir eru líklegir til að líta eftir fimmtíu eða hundrað ár, út frá þeirri vísindalegu þekkingu sem er til um líklegustu þróun mála. Það verður næsta verkefni, að reyna að myndgera framtíðina,“ segir Þorvarður. Hópur samstarfsaðila við Dundee-háskóla hafi áhuga á að vinna að því verkefni. Heinabergsjökull hefur hopað og þynnst verulega frá 1982. Líkt og við svo marga aðra jökla á sunnanverðu landinu stækkar lónið við jökulsporðinn hratt.Landmælingar Íslands/Dr. Kieran Baxter/Háskólinn í Dundee
Loftslagsmál Vísindi Tækni Hornafjörður Tengdar fréttir BBC fjallar um örar breytingar á Skaftafellsjökli Árið 1989 heimsótti breski ljósmyndarinn Colin Baxter Ísland heim ásamt fjölskyldu sinni og tók ljósmynd af Skaftafellsjökli í öllu sínu veldi. Um þrjátíu árum síðar var sonur hans mættur aftur fyrir framan skriðjökulinn til að feta í fótspor föður síns en við blasti heldur breytt landslag. 1. febrúar 2021 11:49 Jöklarnir tapa um fjórum milljörðum tonna af ís á ári Íslenskir jöklar hafa tapað um fjórum milljörðum tonna af ís að meðaltali á ári undanfarin 130 ár og er rýrnun þeirra ein sú mesta á jörðinni utan heimskautanna. Um helmingur massatapsins hefur átt sér stað síðasta aldarfjórðunginn. 3. desember 2020 07:01 Mest lesið Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Innlent Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent Tilgangurinn að ná í „easy money“ Innlent Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Erlent Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Innlent Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris Innlent Hættir sem ritstjóri Kveiks Innlent Fleiri fréttir Minntust Jesse í Vesturbænum: „Það er mikill söknuður af virkilega góðum dreng“ Skýr mynd dregin upp í dómsal og minningarstund Hækkar frítekjumark vegna hækkunar örorkulífeyris „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Kjaraviðræður Sinfó „stefni í rétta átt“ Stöðupróf verði skylda í öllum skólum strax í vor „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Núverandi staða ekki talin vera alvarleg Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Opna Vesturbæjarlaug á morgun en Sundhallargestir þurfa að bíða Tilgangurinn að ná í „easy money“ Jökulhlaupið í rénun Í beinni frá héraðsdómi, unglingadrykkja og áheitakóngur Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Hættir sem ritstjóri Kveiks Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra Meirihluti hefur áhyggjur af laxastofninum nema í fjörðunum Jóhann tekur við af Gunnari hjá Landssambandi veiðifélaga Skýrslur teknar af tíu börnum undir sex ára á síðustu 20 árum Lögregla kölluð til vegna einstaklinga sem tjölduðu í skógarrjóðri Betra að borga tryggingarnar en að sitja uppi með allsherjartjón Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Metaðsókn og söfnunarmet slegið 13,3 milljarðar frá Íslandi til Úkraínu: Danska leiðin „ein sú besta“ til að styrkja varnir Evrópu Steindór Örn endurkjörinn formaður Hallveigar Það logaði glatt í Bergþórshvoli á Njáluhátíð í Rangárþingi Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Myndskeið af rallýslysi, sjálfstæð Úkraína og brennan á Bergþórshvoli Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Sjá meira
BBC fjallar um örar breytingar á Skaftafellsjökli Árið 1989 heimsótti breski ljósmyndarinn Colin Baxter Ísland heim ásamt fjölskyldu sinni og tók ljósmynd af Skaftafellsjökli í öllu sínu veldi. Um þrjátíu árum síðar var sonur hans mættur aftur fyrir framan skriðjökulinn til að feta í fótspor föður síns en við blasti heldur breytt landslag. 1. febrúar 2021 11:49
Jöklarnir tapa um fjórum milljörðum tonna af ís á ári Íslenskir jöklar hafa tapað um fjórum milljörðum tonna af ís að meðaltali á ári undanfarin 130 ár og er rýrnun þeirra ein sú mesta á jörðinni utan heimskautanna. Um helmingur massatapsins hefur átt sér stað síðasta aldarfjórðunginn. 3. desember 2020 07:01