Meingallað kerfi afurðastöðva Gunnar Tryggvi Halldórsson skrifar 19. febrúar 2021 18:01 Umræða um fæðuöryggi hefur verið töluverð síðastliðin ár og sitt sýnist hverjum. Þannig finnst mörgum að stjórnvöld þurfi að gera meira til að tryggja það, m.a. með betri reglum um eignarhald á jörðum, tollavernd og fjármagn til nýsköpunar. Öðrum finnst merkilegra að efla alþjóðlegt samstarf í þessum efnum, hvernig svo sem það tryggir fæðuöryggi. Í síðustu viku kom út skýrsla um málefnið sem unnin var fyrir Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Þar eru Íslendingar taldir vel rúmlega sjálfbærir með fisk, af kjötþörf landsmanna er 90% framleitt innanlands og 43% af grænmeti. Fyrirsögn með frétt á Ríkisútvarpinu var „Íslensk framleiðsla fullnægir eftirspurn að mestu“. Sumum finnst kannski þetta allt í lagi að þetta sleppi að „mestu“ en ég held að það sé full þörf á að bæta verulega í, og þá einvörðungu varðandi íslenska framleiðslu. Grænmetisframleiðsla er samkvæmt þessari skýrslu aðeins að anna tæplega helming neyslu. Það er algjört lykilatriði að ná þessari prósentutölu upp og setja fullan kraft í það. Það má gera með auknu fjármagni til nýsköpunar eða það sem betra er – með ódýrara rafmagni sem framleitt er í heimabyggð. Ég geri mér grein fyrir að þessi markaður er harður samanborið við innflutt grænmeti sem er ræktað án húsnæðis og rafmagns erlendis. Markaðshlutdeild sýnir þó að íslensk framleiðsla á góða möguleika á að stækka enn frekar og þá vegferð þarf að hefja – eigi síðar en núna. Framleiðsla á kjöti er síðan sér kapítuli fyrir sig ! Sú framleiðsla styðst við kerfi sem fáir skilja að fullu. Kerfið virðist hannað til að allir tapi eða hangi áttavilltir í lausu lofti. Afurðastöðvar eru alltaf á tæpasta vaði og nú seinast greindi SS frá því að taprekstur væri vegna skorts á ferðamönnum í landinu. Bændur geta því ekki átt von á hækkun afurðaverðs þegar afurðastöð er rekin með halla, það þarf engan sérfræðing að sunnan til að skilja það. Kannski felast í þessu öllu einföld skilaboð til bænda. Ef góðu ferðamannaárin voru ekki að skila betra verði til bænda, hvernig er þessi rekstur eiginlega uppbyggður? Hvorki afurðastöðvar né hráefnisframleiðendur (bændur) fá viðunandi hluta af kökunni. Hvað er að þessu kerfi? Fyrir löngu síðan varð það augljóst að þetta gengur ekki lengur upp og það er ekki endalaust hægt að skoða, vinna að, stefna á að eða setja einhver markmið í þessum málum. Það þarf að framkvæma og gera. Það er ein augljós skekkja í þessu ferli sem þarf að taka strax á. Það er sú staðreynd að afurðarstöðvar eru margir hverjir að flytja inn kjöt til að selja meðfram íslenskri framleiðslu sinni. Það er jafnvel settar takmarkanir á slátrun nautgripa á sama tíma og afurðastöðvar eru að flytja inn nautgripakjöt. Þetta er gert á sama tíma og afurðastöðvar eru að vinna fyrir bændur og margar í eigu bænda. Ef þetta er ekki hagsmunaárekstur, þá eru hagsmunaárekstur ekki til. Margar afurðarstöðvar eru nefnilega ekki að vinna fyrir hagsmuni bænda, það er alveg ljóst. En það skal tekið fram að þetta á ekki við um allar kjötafurðastöðvar. Jafnframt er óskiljanlegt af hverju Landssamtök sláturleyfishafa eru ekki sterkari talsmenn á móti innflutningi á kjöti, sem ætti að vera eitt af þeirra aðal áhersluatriðum. Kannski er það af því að sumar afurðarstöðvar eru bæði að éta kökuna og halda henni. Bændur sem eiga afurðastöðvar þurfa að ganga fram með fordæmi, í breiðri samvinnu, og láta afurðastöðvar sínar hætta að vera þátttakendur í innflutningi á kjöti. Með því væru þær að setja hagsmuni bænda og atvinnusköpunar í fyrsta sætið. Í framhaldi er hægt að gera kröfu á fulltrúa afurðastöðva í Landssamtökum sláturleyfishafa að vinna gegn innflutningi á kjöti og leggjast á árar íslenskrar framleiðslu. Ég er heldur ekki viss um að óskilyrt undanþága frá samkeppnislögum leysi allan vanda á einu bretti. Slík undanþága ætti meiri rétt á sér ef skorið væri á streng innflutning um leið og markmið samstarfs væri að flytja afurðir úr landi en ekki flytja úrbeinað kjöt inn í landið. Undanfarin ár hefur eignarhald á afurðastöðvum færst á færri hendur og það hefur ekki skilað sér til bænda með verðhækkunum. Þess vegna er ég ekki sannfærður um að heimild til meiri samvinnu skili sér alla leið til bænda, sem ætti að vera algjört forgangsatriði, nema að vel ígrunduðu máli. Íslensk framleiðsla er atvinnulífi og landsbyggðinni mjög mikilvæg. Stór hluti matvöruframleiðslu fer fram á landsbyggðinni og oft eru þessi fyrirtæki máttarstólpar atvinnulífs smærri samfélaga. Þetta má heimfæra yfir á alla framleiðslu á Íslandi, hvort sem það er iðnaður, þjónusta, orkuiðnaður eða annað. Við viljum skapa atvinnu og öflug íslensk fyrirtæki sem geta sinnt innanlandsmarkaði sem og selt úr landi framleiðslu sína. Með því tryggjum við fæðuöruyggi á sama tíma og við sköpum gjaldeyri fyrir þjóðarbúið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matvælaframleiðsla Skoðun: Kosningar 2021 Mest lesið Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar