Skoðun

Tvær flugur, eitt kjördæmi

Starri Reynisson skrifar

Í viðtali sem Ríkisútvarpið tók á dögunum við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, kom fram að jöfnunarsæti í kosningum til Alþingis séu of fá til að tryggja jöfnuð milli þingflokka í samræmi við atkvæðamagn á landsvísu. Sú staða skapar alvarlegan lýðræðishalla og undirstrikar þær gífurlegu brotalamir á íslensku lýðræði sem misvægi atkvæða er.

Kosningarétturinn telst til grundvallarmannréttinda og misvægi atkvæða er gróf aðför að honum. Jöfnunarþingsætin eru tilraun til að leiðrétta misvægið án þess að breyta kjördæmaskipan eða fækka þingmönnum ákveðinna kjördæma um of. Þá hafa þingsæti einnig verið færð milli kjördæma til að reyna að draga beint úr misvæginu. Fjölgun á jöfnunarsætum og tilfærsla þingsæta milli kjördæma eru þó hvort tveggja eingöngu litlir plástrar á stórt sár. Það að gera landið að einu kjördæmi er farsælasta leiðin til að leiðrétta misvægið endanlega.

Með þeirri leið sláum við tvær flugur í einu höggi, enda fengist ýmis ávinningur annar en eðlileg virðing fyrir lýðræðislegum réttindum fólks. Væri landið eitt kjördæmi myndi skapast stjórnmálaumhverfi þar sem kjörnir þingmenn vinna að hagsmunum landsins alls öllum til heilla, en ekki sérhagsmunum afmarkaðra svæða til að vinna sjálfum sér atkvæði. Ákvarðanataka myndi í auknum mæli miðast við hagsmuni heildarinnar og skaðlegt kostnaðarsamt kjördæmapot myndi heyra sögunni til.

Það þarf ekki að þýða að eitthvert svæði yrði út undan, enda eru það hagsmunir höfuðborgarsvæðisins að landsbyggðin sé öflug og hagur landsbyggðarinnar að höfuðborgin sé það líka. Þetta væri vonandi til þess fallið að rígur milli landshluta myndi minnka og áratugagamalt “við og þið” viðhorf myndi deyja út. Við búum eftir allt saman í alþjóðavæddum heimi, samkeppnin um búsetu er ekki lengur milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis heldur milli Íslands og annara landa. Það er samstarfsverkefni okkar allra að sjá til þess að Ísland sé samkeppnishæft, það er best að nálgast það verkefni sem ein heild í einu kjördæmi.

Höfundur er forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×