Juventus tryggði sér sigur á lokamínútunum manni fleiri 10. janúar 2021 21:45 Leikmenn Juventus fagna marki í kvöld. getty/Daniele Badolato Pedro Obiang fékk rautt spjald í uppbótartíma fyrri hálfleiks og þurftu Sassuolo að spila manni færri allan seinni hálfleik. Danilo kom Juventus yfir með glæsilegu skoti fyrir utan teig á 50. mínútu og héldu flestir þá að þetta væri komið hjá Juventus. Sassuolo gáfust þó ekki upp og Gregoire Defrel jafnaði metin á 58. mínútu með frábærum tilþrifum. Sassuolo var betri aðilinn í leiknum eftir jöfnunarmarkið og voru líklegri til að skora þangað til Aaron Ramsey kom Juventus yfir á nýjan leik á 82. mínútu. Það var síðan enginn annar en Cristiano Ronaldo sem gulltryggði sigurinn með marki í uppbótartíma. Juventus er núna í 4. sæti með 33 stig, sjö stigum á eftir toppliði Milan með leik til góða. Sassuolo er í 7. sæti með 29 stig. Ítalski boltinn
Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn
Uppgjörið: Keflavík - Njarðvík 1-2 | Njarðvík leiðir Suðurnesjaslaginn en missir Oumar Diouck í leikbann
Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Íslenski boltinn