Ofsóttir Úígúrar sagðir í nauðungarvinnu fyrir vestræn vörumerki Kjartan Kjartansson skrifar 2. mars 2020 11:36 Kona af þjóðflokki Úígúra á gangi við áróðursborða í borginni Urumqi í Xinjiang-héraði í Kína. Úígúrar eru um 40% íbúar þar en hafa sætt ofsóknum af hálfum yfirvalda. Vísir/EPA
Kínversk stjórnvöld hafa neytt þúsundir Úígúra til að vinna í verksmiðjum sem framleiða vörur fyrir nokkur af stærstu vörumerkjum heims. Um milljón Úígúra hefur verið hneppt í fangabúðir og er nauðungarvinnan sögð annar liður í tilraunum stjórnvalda til þess að „endurmennta“ þá. Úígúrar eru þjóðarbrot í norðvestanverðu Kína sem stjórnvöld hafa markvisst ofsótt vegna múslimatrúar þeirra. Fregnir hafa borist af risavöxnum fangabúðum í Xinjiang þar sem um milljón þeirra hefur verið send. Yfirvöld halda því fram að tilgangur búðanna sé að berjast gegn ofbeldisfullu trúarofstæki en vísbendingar eru um að fólk hafi verið sent í búðirnar fyrir það eitt að iðka trú sína. Í skýrslu áströlsku hugveitunnar ASPI kemur fram að um 80.000 Úígúrar hafi verið sendir frá Xinjiang-héraði, þar sem um 40% íbúa eru Úígúrar, í verksmiðjur um allt Kína á milli 2017 og 2019, sumir þeirra beint út fangabúðunum. Verksmiðjurnar framleiða meðal annars vörur fyrir 83 vestræn fyrirtæki eins og Nike, Apple og Dell, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Nær ómögulegt er fyrir Úígúra að neita að vinna eða losna undan vistinni þar sem þeir eiga yfir höfði sér að vera hnepptir í hald, að sögn skýrsluhöfunda. ASPI telur ráðstöfnunina næsta áfanga í áframhaldandi kúgun kínverska stjórnvalda á Úígúrum. Í verksmiðjunum eru Úígúrar látnir hafast við í svefnsölum þar sem fólk er skilið að á grundvelli kynþáttar. Þeir eru skyldaðir til að taka námskeið í mandarín í gangast undir annars „hugmyndafræðilega þjálfun“ utan vinnutíma. Þá er þeim bannað að iðka trú sína og stanslaust eftirlit er haft með þeim. ASPI telur að mögulegt sé að bæði erlendu og kínversku fyrirtækin séu ekki meðvituð um mannréttindabrotin á Úígúrum en krefst þess að þau rannsaki aðstæður í verksmiðjunum. Nike sagði Washington Post að verksmiðjum sem fyrirtækið verslar við sé algerlega bannað að nýta sér fanga eða aðra sem eru neyddir til vinnu.
Kína Apple Mest lesið Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent