Grænn drykkur og súkkulaði í morgunmat og góð ráð fyrir byrjendur í hlaupi Rakel Sveinsdóttir skrifar 2. maí 2020 10:00 Sólarhyllingin við sólarupprás í Albír á Spáni.
Sumir tengja hana við Heilsuhelgar Mörthu Ernst á meðan aðrir tengja hana við hlaup. Einhverjir jóga og einhverjir sjúkraþjálfun. Hver svo sem tengingin er má telja líklegt að allir sem hafa heyrt eða þekkja til Mörthu Ernst tengja hana við heilbrigðan lífstíl. Enda er Martha lærð í sjúkraþjálfun, hómópatíu, höfuðbeina- og spjaldhryggjameðferðum, innri líffæralosun og sem jógakennari. Til viðbótar er hún hlaupaþjálfari og án efa þekktasta hlaupakona landsins. Martha þjálfar bæði almenningsskokk og afrekshlaupara hjá ÍR og í kaffispjalli helgarinnar gefur hún okkur góð ráð fyrir byrjendur. Í kaffispjalli helgarinnar spyrjum við alltaf hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um helstu verkefni og skipulagið. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég vakna oftast á bilinu sjö til hálfátta.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég reyni að muna eftir því að þakka fyrir daginn sem framundan er og senda ljós á daginn og lífið. Mér þykir líka mjög gott að senda ljós og góða orku á allt fólkið mitt og þá sem ég veit að eru að fást við erfið verkefni. Ég fæ mér góðan, grænan drykk, fullt af vítamínum og góða omega fiskiolíu og svo er ómissandi fyrir mig að fá mér lífræna, dökka súkkulaðið mitt frá rapunzel.“ Góð ráð fyrir byrjendur Hvaða ráð myndir þú gefa fólki sem hefur áhuga á að byrja að skokka/hlaupa en veit ekki alveg hvernig það á að byrja? 1. ÞESSI MANTRA Á ALLTAF VIÐ: MINNA ER BETRA EN MEIRA! Flestum hættir til að byrja alltof skart sem gæti gengið í smá tíma en svo segir líkaminn alltof oft STOPP og við höldum þá að hlaup séu ekki fyrir okkur. 2. Ef þú hefur ekki hlaupið frá því þú varst barn eða unglingur þá er mjög gott að byrja að ganga og setja inn smá skokk, til dæmis 2-3 ljósastaura fjórum sinnum í hverjum göngutúr. Þetta er gott að gera kannski þrisvar sinnum í viku til að byrja með. Gera þetta í 6-8 vikur og lengja alltaf aðeins skokkhlutann og færa sig upp í fjórum sinnum í viku. 3. Finna sér þjálfara og/eða skokk/hreyfihóp þar sem haldið er vel utan um byrjendur og skynsemin er í fyrirrúmi. 4. Fara til sjúkraþjálfara og fá nokkrar styrktaræfingar og teygjur. 5. HLUSTA Á LÍKAMANN OG BAKKA ÚT EÐA FÁ AÐSTOÐ EF EITTHVAÐ KEMUR UPP Á. 6. EKKI nota bólgueyðandi lyf til halda áfram ef líkaminn er að kvarta. Hann kvartar ekki að óþörfu. Þú þarft að komast að því af hverju hann kvartar. Kannski þarftu að minnka álagið, styrkja, teygja, drekka meira vatn, taka steinefni eða eitthvað annað. Ef þú tekur verkjalyf og bólgueyðandi þá ertu að segja líkamanum að þegja og til lengri tíma litið þá kannski þarftu að hætta að hlaupa. 7. Gefðu þér GÓÐAN tíma til að aðlaga líkamann að álaginu. GÓÐIR HLUTIR GERAST HÆGT...sorrý Stína þetta er bara svona. 8. Gangi þér vel Jóga í Marokkó þar sem Martha var farastjóri í ferð með íslenskum fjallaleiðsögumönnum í fyrra. Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? Eins og alltaf að hlaupa, iðka yoga og hef verið sérlega dugleg við armbeygjurnar en ég hef verið í ástar-hatur samband við þær undanfarnar vikur. Smá vinna hér og þar og þjálfa. Vera með fjölskyldunni og hitta barnabörnin sem eru mestu gleðigjafarnir í lífinu.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Mikið skipulagt kaos í kringum mig. Þess vegna finnst mér mjög gott að skrifa niður það sem ég ætla að gera og þá minnka ég stressið í hausnum á mér að ég gæti gleymt þessu eða hinu. Það er sem sagt mikið af miðum og sneplum í vösunum mínum, í töskunum mínum, á borðinu mínu og út um allt í kringum mig. Annars nota ég líka mjög mikið jógaöndun til að róa hugann þegar hann er á fullu að reyna að muna eftir öllu. Öndun er lykillinn að rónni og án meðvitaðarar öndunar veit ég ekki hvar ég væri.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Á milli hálfellefu og hálftólf.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir Neyddur til að vera A manneskja aðra hverja viku og aðeins stóru málin komast á blað Hann viðurkennir að svefninn er í algjöru rugli en segir heilann vakna á næturna. Styðst við skipulagskerfi sem yfirmaður kenndi honum hjá Creditinfo Group. 25. apríl 2020 10:00 „Maðurinn minn kallar mig lampann“ og óttaleg óregla á öllu vegna COVID Í kaffispjalli á laugardögum er talað við fólk í ólíkum störfum um bæði daglegt líf og helstu verkefni í vinnunni. Í þetta sinn er það Áslaug Hulda Jónsdóttir sem situr fyrir svörum. 18. apríl 2020 10:00 Helena einhenta, fjarkennsla og söngvakeppnin í Rotterdam Í kaffispjalli um helgar heyrum við í fólki sem starfar á ólíkum sviðum og í þetta sinn er gestur okkar Reynir Þór Eggertsson, lektor við háskólann í Helsinki og einn þekktasti Eurovision sérfræðingur landsins. 4. apríl 2020 10:00 Konan með kórónu-húmorinn reynir að fela ógreitt hárið á morgnana Í kaffispjalli um helgar er talað við fólk í ólíkum störfum. Þessa helgina er rætt við Lóu Hlín Hjálmtýsdóttir, myndasögu- og handritstöfund, teiknara, rithöfund og konuna á bakvið óborganlegan húmor Lóuboratoríum myndasögunnar. 28. mars 2020 10:00 Mest lesið Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Viðskipti innlent Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Neytendur Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Viðskipti innlent Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur Samstarf Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Samstarf Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Viðskipti innlent Deila um þvottahús stöðvar ekki Hreint í bili Viðskipti innlent BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Samstarf Fleiri fréttir Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ „Væri samt mjög til í að vera betri söngvari“ „Við bara tókum íslensku brjáluðu bjartsýnina á þetta“ Fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda Stúdentar taka til: Z-kynslóðin er að velja sér fyrirtæki framtíðarinnar „Ég vonaðist til að lampinn myndi breyta mér í A-týpu“ Fyrirsæta, frumkvöðull, fjárfestir: „Ég held ég sé ekki enn farin á gelgjuna!“ Innsæið: Við stressum oft fólk upp með spurningum og pressu „Ég nota innsæið mitt mjög mikið enda er innsæið ekkert tabú“ Hermann í Kemi: „Kom mér mjög á óvart að verða svona ástfanginn“ Kærastan grjóthörð með svefntímann kvölds og morgna Unga fólkið greinilega að hugsa um sjálfbærnimálin „Hvernig hefðu amma og afi gert þetta?“ Vinnufélagarnir: Kjaftakerlingin, dramadrottningin, sá svartsýni og fleiri Síðasta hláturskast tók verulega á grindarbotninn Góð ráð: Draumastarfið á draumavinnustaðnum Að taka því ekki persónulega hvernig týpa þinn yfirmaður er Fjórar týpur af yfirmönnum: Hver er þín týpa? Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Questhjónin: „Sterkbyggðustu húsin voru barirnir og vændishúsin“ Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Fleiri hlutastörf: Ríkið greiðir nú þegar 75% launa sem mótframlag Breytingar í framkvæmdastjórateymum oft nauðsynlegar Sjá meira
Neyddur til að vera A manneskja aðra hverja viku og aðeins stóru málin komast á blað Hann viðurkennir að svefninn er í algjöru rugli en segir heilann vakna á næturna. Styðst við skipulagskerfi sem yfirmaður kenndi honum hjá Creditinfo Group. 25. apríl 2020 10:00
„Maðurinn minn kallar mig lampann“ og óttaleg óregla á öllu vegna COVID Í kaffispjalli á laugardögum er talað við fólk í ólíkum störfum um bæði daglegt líf og helstu verkefni í vinnunni. Í þetta sinn er það Áslaug Hulda Jónsdóttir sem situr fyrir svörum. 18. apríl 2020 10:00
Helena einhenta, fjarkennsla og söngvakeppnin í Rotterdam Í kaffispjalli um helgar heyrum við í fólki sem starfar á ólíkum sviðum og í þetta sinn er gestur okkar Reynir Þór Eggertsson, lektor við háskólann í Helsinki og einn þekktasti Eurovision sérfræðingur landsins. 4. apríl 2020 10:00
Konan með kórónu-húmorinn reynir að fela ógreitt hárið á morgnana Í kaffispjalli um helgar er talað við fólk í ólíkum störfum. Þessa helgina er rætt við Lóu Hlín Hjálmtýsdóttir, myndasögu- og handritstöfund, teiknara, rithöfund og konuna á bakvið óborganlegan húmor Lóuboratoríum myndasögunnar. 28. mars 2020 10:00