Innlent

Siggi Stormur boðar „mjög gott“ veður í sumar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi Stormur var landsþekktur veðurfréttamaður á árum áður. Hann er bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði í dag.
Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi Stormur var landsþekktur veðurfréttamaður á árum áður. Hann er bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði í dag.

Veðrið í sumar verður með fínasta móti, jafnvel í líkingu við veðrið í fyrrasumar ef marka má Sigurð Þ. Ragnarsson, Sigga Storm. Hann segir horfur á að sumarið verði „mjög gott“ enda líti veðurfarsgögnin betur út en oft áður.

Hann segist hafa grúskað í umræddum gögnum undanfarin fimmtán ár og sé því farinn að þekkja þau og treysta þeim vel. Til að mynda hafi gögnin gefið til kynna að sumarið í fyrra yrði þurrt og hlýtt sem hafi síðan orðið raunin, þvert á aðrar langtímaspár sem birtust í aðdraganda sumars.

Sigurður segir útlit fyrir að sumarið í ár muni fara hægt af stað, maímánuður verið ágætur en kannski ekki eins hlýr og fólk hefði óskað. Veðrið verði þó stöðugt betra eftir því sem líður á og gerir Sigurður ráð fyrir að það verði einna best í júlí og ágúst.

Einna best fyrir norðan en suðvesturhornið fínt líka

Þrýstifarið verði þannig svipað og í fyrrasumar, viðloðandi hæðakerfi fyrir sunnan land „þó auðvitað komi lægð og lægð,“ segir Sigurður. Það verði því ekki hjá einhverri rigningu komist en heilt yfir verði sumarið bjart, þurrt og hlýtt.

Veðrið verði einna best á norðausturhorninu og Austurlandi. Það þýði þó ekki að höfuðborgarsvæðið verið skilið eftir útundan, þar verði þurrara en í meðalári en hitinn í kringum meðaltal. Þó sé hætt á skúrum á annesjum.

Sigurður segist því ætla að leyfa sér að vera bjartsýnn fyrir næsta sumar, þó svo að sumar og vetur frjósi líklega ekki saman í nótt eins og þjóðtrúin segir til um. Hann ætli að leyfa sér að túlka gögnin á þá leið að veðrið í sumar verði í svipað og í fyrra. Það hafi að minnsta kosti lyfst á honum brúnin þegar hann lagðist yfir gögnin á dögunum, enda verður gott veður kærkomið í yfirstandandi kórónuveiruhremmingum.

Spjall Sigurðar Þ. Ragnarssonar við Reykjavík síðdegis má heyra hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×