Munu opna á vöruflutninga um Ermarsundsgöngin Atli Ísleifsson skrifar 22. desember 2020 08:15 Miklar biðraðir hafa myndast við Ermarsundsgöngin eftir að landamærum Bretlands og Frakklands var lokað. Getty Breski forsætisráðherrann Boris Johnson og Emmanuel Macron Frakklandsforseti hafa náð samkomulagi um að opna landamæri ríkjanna að nýju.
Listinn varð í gær langur yfir þau ríki sem lokuðu á flug frá Bretlandi vegna hins nýja afbrigði kórónuveirunnar sem hefur breiðst út í Bretlandi. Þannig lokuðu meðal annars Kanada, Danmörk, Finnland, Argentína, Frakkland, Svíþjóð og Þýskaland öll á flug frá Bretlandi og herti aðgerðir vegna fólks sem kemur þaðan. Í Bretlandi mynduðust langar raðir og þá þá varð nokkur óvissa um vöruframboð. Til að róa landsmenn sína tilkynnti Boris Johnson í kjölfarið að flæði vara inn í landinu yrði tryggt. Sagðist hann hafa rætt við Macron og að þeir væru sammála um að reynt yrði að tryggja að samgöngur myndu raskast sem minnst. Nú í morgun var svo tilkynnt að leiðtogar ríkjanna hefðu náð samkomulagi sem tryggi vöruflutninga milli landanna. Mun Clément Beaune, ráðherra Evrópumála í Frakklandi, kynna hvað komi í stað hinnar 48 tíma lokunar á flugleiðum síðar í dag. Þetta nýja afbrigði kórónuveirunnar sem hefur greinst í Bretlandi er sagt vera sérstaklega smitandi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bretland Frakkland Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Fleiri fréttir Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Sjá meira