Hér fyrir neðan má finna uppskriftina að jólapavlovum.
Marensbotnarnir
- 6 eggjahvítur
- 300 g sykur
- 1 ½ tsk mataredik
- 1 tsk vanilludropar
- Salt á hnífsoddi
Aðferð:
- Hitið ofninn í 100°C og ég stilli á blástur.
- Þeytið eggjahvítur með salti, bætið sykri saman við í þremur skömmtum og þeytið vel á milli. Bætið ediki og vanilludropum saman við þegar marensinn er orðinn stífur.
- Skiptið marensblöndunni niður í nokkur hreiður og það má líka búa til eina stóra köku. Fer bara eftir smekk hvers og eins.
- Bakið kökurnar við 100°C í 90 mínútur. Slökkvið á ofninum, opnið hurðina og látið kökurnar kólna alveg og best ef þær fá að kólna í ofninum yfir nótt.

Toblerone rjómi
- 500 ml rjómi
- 1 tsk vanilludropar
- 1 msk flórsykur
- 100 g toblerone súkkulaðisósa. Uppskrift má finna hér að neðan + meiri til þess að skreyta kökurnar í lokin. Gott að gera tvöfalda uppskrift að súkkulaðisósunni!
- 60 g toblerone súkkulaði
- Fersk ber til skrauts
Aðferð:
- Setjið súkkulaðisósu, mikilvægt að hún sé orðin köld og rjóma saman í hrærivél ásamt vanilludropum og flórsykri. Þeytið saman þar til súkkulaðirjóminn er orðinn stífþeyttur.
- Saxið niður toblerone súkkulaðið og bætið út í rjómakremið.
- Fyllið marengskökurnar með súkkulaðirjómanum og skreytið með ferskum berjum. Það er agalega gott að gera meira af súkkulaðisósunni og hella yfir kökurnar í lokin, það setur punktinn yfir i-ið.
Toblerone súkkulaðisósa
- 200 g Toblerone súkkulaði
- 2 – 3 msk rjómi
Aðferð:
- Saxið niður súkkulaðið. Bræðið súkkulaði í rjóma við vægan hita, byrjið á því að setja 2 matskeiðar af rjóma og ef ykkur finnst sósan of þykk þá bætið þið meiri rjóma saman við.
- Kælið alveg áður en þið notið sósuna í rjómakremið.