Landsbankinn hækkar vexti nýrra óverðtryggðra íbúðalána Sylvía Hall skrifar 16. nóvember 2020 23:31 Ákveðið var að breyta vöxtum vegna hækkunar á ávöxtunarkröfu sértryggða skuldabréfa. Vísir/Vilhelm
Fastir vextir á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum hjá Landsbankanum hækka um 0,15 til 0,20 prósentustig frá og með þriðjudeginum 17. nóvember. Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum verða áfram 3,5 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum en þar segir að Landsbankinn hafi verið í forystu um að lækka útlánsvexti frá því að Seðlabankinn hóf vaxtalækkunarferli. Eftirspurn eftir íbúðalánum bankans hafi aukist verulega en ákveðið hafi verið að breyta vöxtum vegna hækkunar á ávöxtunarkröfu sértryggða skuldabréfa. „Landsbankinn fjármagnar íbúðalán meðal annars með útgáfu sértryggðra skuldabréfa með föstum vöxtum sem boðin eru út á skuldabréfamarkaði. Vaxtabreytinguna nú má fyrst og fremst rekja til þess að ávöxtunarkrafa sértryggðra skuldabréfa hefur hækkað umtalsvert frá síðustu vaxtabreytingu.“ Þá hækka fastir vextir óverðtryggðra íbúðalána til 36 mánaða um 0,15 prósentustig og fastir vextir óverðtryggðra íbúðalána til 60 mánaða hækka um 0,20 prósentustig. Fastir vextir til 36 mánaða vegna bíla- og tækjafjármögnunar hækka um 0,15 prósentustig en aðrir útlánsvextir eru óbreyttir. Fastir innlánsvextir til 36 mánaða hækka um 0,15 prósentustig og fastir innlánsvextir til 60 mánaða hækka um 0,20 prósentustig. Einnig verða breytingar á innlánsvöxtum gjaldeyrisreikninga í sterlingspundum, Kanadadal og norskri krónu.
Íslenskir bankar Neytendur Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira