Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag.
Alma Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi ásamt Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni.
Gestur fundarins verður Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Fundurinn verður sem fyrr í beinni útsendingu á Vísi, í sjónvarpinu á Stöð 2 Vísi og svo í textalýsingu hér að neðan.
Uppfært: Fundinum er lokið en upptöku frá honum má sjá að neðan.