Víðir ráðinn í stöðu Víðis Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. nóvember 2020 23:52 Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn. Vísir/Vilhelm
Guðmundur Víðir Reynisson, betur þekktur sem Víðir Reynisson, hefur verið ráðinn í stöðu yfirlögregluþjóns almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra. Víðir hefur gegnt stöðunni undanfarna mánuði og mun nú gera það áfram með formlegri ráðningu. Ráðið hefur verið í þrjár af fjórum stöðum sem auglýstar voru lausar í byrjun september í tengslum við skipuritsbreytingar embættis ríkislögreglustjóra. Auglýst var eftir umsóknum í stöður sviðstjóra þjónustusviðs, landamærasviðs, almannavarnasviðs og alþjóðasviðs. Líkt og áður segir hefur Víðir verið skipaður yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs. Hann var enda sá eini sem sótti um stöðuna, sem hann hefur sjálfur gegnt undanfarna mánuði. Þá hefur Jón Pétur Jónsson verið skipaður yfirlögregluþjónn landamærasviðs og Rannveig Þórisdóttir ráðin sviðsstjóri þjónustusviðs. Ráðningarferli í stöðu sviðsstjóra alþjóðasviðs stendur enn yfir. Tilkynnt verður um skipun í stöðuna þegar því er lokið. Víðir og Jón Pétur tóku formlega við stöðum sínum 1. nóvember síðastliðinn. Rannveig mun taka við þjónustusviði á næstu vikum. Rannveig Þórisdóttir. Jón Pétur Jónsson.
Lögreglan Almannavarnir Vistaskipti Mest lesið Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Sjá meira