Meistararæða Þorsteins á Zoom hitti beint í mark Anton Ingi Leifsson skrifar 2. nóvember 2020 23:00 Berglind Björg raðaði inn mörkum í sumar eins og henni einni er lagið. vísir/daníel þór
Berglind Björg Þorvaldsdóttir var stödd á hótelherbergi með liði sínu Le Havre í Frakklandi er hún fékk skilaboðin um að hún væri Íslandsmeistari í knattspyrnu eftir að Íslandsmótin voru blásin af fyrir helgi. Berglind Björg lék með Breiðablik stærsta hluta sumarsins en í síðasta mánuði gekk hún í raðir Le Havre sem er nýliði í frönsku úrvalsdeildinni. Þar hefur hún raðað inn mörkum en hún sagði að þetta hafi verið skondin upplifun fyrir helgi. „Ég var á hóteli með liðinu mínu og við vorum að fara spila útileik,“ sagði Berglind og hélt áfram: „Ég fékk send skilaboðin „Til hamingju“ og ég fór strax á netið og sá að það væri búið að slaufa mótinu,“ sagði Berglind við Vísi í dag. ÍSLANDSMEISTARAR 2020 pic.twitter.com/1Fht4cvm1p— Blikar.is (@blikar_is) October 31, 2020 „Ég sagði svo við Önnu Björk (Kristjánsdóttur) liðsfélaga minn að ég væri orðinn Íslandsmeistari. Þetta var virkilega góð tilfinning að verða Íslandsmeistari en á sama tíma smá skrýtið þar sem við fengum ekki að lyfta dollunni. Vonandi fáum við þó að fagna þessu öll saman í desember,“ sagði Berglind. En hvað fannst henni um ákvörðun KSÍ? „Persónulega hef ég ekki mikla skoðun á þessu þar sem ég er ekki að spila heima lengur en ég sá niðurstöðurnar úr könnun Leikmannasamtakanna. Þar kom í ljós að meirihlutinn af leikmönnum úr Pepsi Max deildunum vildu að mótið myndi enda en það er margt sem KSÍ þurfti að skoða enda mikið í húfi. Eins og staðan er núna í samfélaginu þá er fótboltinn ekki í fyrsta sæti þannig ég held að það hafi verið rétt ákvörðun að enda mótið.“ Breiðablik fagnaði Íslandsmeistaratitlinum á Zoom, annað en einhver önnur lið, og fengu Blikarnir mikil hrós fyrir það. Íslandsmeistarar kvk og íslandsmeistara kk að fagna titli í gær! Augljóst hvaða lið vinnur líka titil samfélagsins Til hamingju @BreidablikFC @astaeir @berglindbjorg10 @hildurantons pic.twitter.com/nZ1tkkY1s7— Þórdís Hrönn (@sosi93) October 31, 2020 „Zoom fundurinn var frábær. Við vorum öll saman í hátt í þrjá tíma að rifja upp árið og tímabilið. Þetta er búið að vera ótrúlega sérstakt ár hjá okkur og uppskera svo titilinn í lokinn er virkilega góð tilfinning. Steini var með meistararæðu í beinni og einnig Aron styrktarþjálfari. Báðar ræðurnar hittu beint í hjartað. Vonandi getum við svo opnað kampavínsflöskuna öll saman þegar ástandið er orðið betra.“ Eins og áður segir leikur Berglind nú í Frakklandi þar sem hún hefur veriðað gera það ansi gott. Hún segir að mikil meiðsli hafi herjað á Le Havre en franski boltinn hentar henni vel. „Lífið í Frakklandi er bara nokkuð gott. Reyndar er útgöngubann núna sem gildir út nóvember en við megum æfa og spila leikina þannig maður kvartar ekki. Tímabilið hjá okkur hefur verið pínu strembið þar sem margir leikmenn eru búnir að meiðast hjá okkur en við höldum áfram að berjast og ég hef fulla trú á því að þetta fer að detta inn hjá okkur.“ „Franski boltinn hentar mér vel myndi ég segja. Þetta er mjög skemmtileg deild og allir leikir gríðarlega erfiðir. Allir geta unnið alla, nema kannski Lyon og PSG sem eru í sérflokki en frá þriðja sætinu og niður getur allt gerst. Svo er þessi deild ein sú sterkasta í Evrópu þannig það er gaman að máta sig í þessari deild.“ C'est la pause ici à Guingamp, où le HAC tient tête aux Bretonnes. But inscrit pour les locales dès la 2e minute par Robert, égalisation dans la foulée de @berglindbjorg10 #EAGHAC 1-1 pic.twitter.com/8CsWRRc3jg— HAC Féminines (@hacfem) October 31, 2020 Berglind kom inn á sem varamaður í landsleik Íslands gegn Svíþjóð á dögunum og hún segir að stefnan sé að sjálfsögðu að koma sér í byrjunarliðið. „Að sjálfsögðu er markmiðið að komast í byrjunarliðið og auðvitað vill maður fá sem flestar mínútur. Minn fókus er hins vegar að standa mig vel með félagsliðinu og vonandi skilar það sér inn í landsliðið. Við erum með sterkan hóp og það er samkeppni í öllum stöðum. Ég virði ákvörðun þjálfarans og ég er bara tilbúin þegar kallið kemur.“
Pepsi Max-deild kvenna Breiðablik Mest lesið Diogo Jota lést í bílslysi Fótbolti Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Enski boltinn Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Enski boltinn Yfirlýsing Ármanns vegna brottvísunar Arnars Péturs: Hann stytti sér leið Sport Glódís mætti ekki á æfingu Fótbolti Fótboltaheimurinn syrgir fallna félaga Fótbolti Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Handbolti EM í dag: Þungt högg, óvæntur fáni og indverskur matur Fótbolti Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Fótbolti Fleiri fréttir Þróttarar breyttu tapi í sigur með tveimur mörkum í lokin Fær tveggja leikja bann fyrir hártogið Í beinni: Afturelding - Breiðablik | Heimamenn vilja hefna tapið í opnunarleiknum Varð fullorðinn úti „Reisn“ yfir ákvörðun Jóns Daða sem gaf stórliðunum langt nef „Eitt það versta sem ég hef séð síðustu ár“ „Tilhugsunin um að spila fyrir annað félag sat bara ekki rétt í mér“ Jón Daði skrifar undir hjá Selfossi Ætla skrefinu lengra: „Menn muna þá tilfinningu vel“ Skellihlegið í Stúkunni: Svipuð nærvera og þegar Bjössi hitti Karabatic í Lindex Stúkan: Átti annað mark ÍA að standa og hver skoraði? Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin Uppgjörið: Víkingur - Afturelding 2-1 | Víkingar sluppu með skrekkinn Uppgjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga Uppgjörið: Vestri - ÍA 0-2 | Sigur í fyrsta leik Lárusar Orra Uppgjörið: Fram - ÍBV 2-0 | Sanngjarn sigur heimamanna Hverju breytir Lárus Orri hjá Skagaliðinu? Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Fyrsti sigur Fylkismanna í fimmtíu daga Sjáðu markaveislu Valsmanna og varamannaþrennu Kristófers bjarga Blikum Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Sjá meira