Getafe og Valencia óvænt í efstu tveimur sætunum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. september 2020 21:40 Angel Rodriguez fagnar síðara marki sínu í kvöld. Alejandro Rios/Getty Images
Tveir leikir fóru fram í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Valencia og Getafe unnu bæði nokkuð óvænt sigra en þeim var ekki spáð sérstöku gengi fyrir tímabilið. Valencia sótti Real Sociedad heim í kvöld og var búist við öruggum sigri heimamanna. Valencia hefur þurft að selja nær alla sína lykilmenn og var spáð skelfilegu gengi á leiktíðinni. Leikmenn liðsins hafa hins vegar snúið bökum saman og ætla sér að blása á spár spekinga. Maximiliano Gomez skoraði eina mark leiksins þegar fimmtán mínútur voru eftir og reyndist það sigurmark leiksins. Lokatölur 1-0 Valencia í vil en liðið barðist með kjafti og klóm í kvöld og uppskar fimm gul spjöld. Getafe vann öruggan 3-0 sigur á Real Betis en bæði lið höfðu verið vel af stað á leiktíðinni. Angel Rodriguez skoraði tvívegis fyrir heimamenn og Marc Cucurella var einnig á skotskónum. Aissa Mandi nældi sér í tvö gul spjöld í liði Betis og voru gestirnir því manni færri síðustu sjö mínútur leiksins. Alls fóru átta gul spjöld á loft í leiknum. Getafe ser sem stendur á toppi deildarinnar en liðið er með sjö stig eftir þrjá leiki. Valencia er einnig með sjö stig en liðið hefur leikið einum leik meira en Getafe.
Fótbolti Spænski boltinn Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Gardavatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Gardavatnið Bayern München - Arsenal | Englandsmeistararnir heimsækja þýska stórliðið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Sjá meira