Þorsteinn: Forréttindi að berjast um titla Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. september 2020 16:34 Þorsteinn Halldórsson er spenntur fyrir leiknum gegn Val á laugardaginn. vísir/elín björg
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, hafði yfir litlu að kvarta eftir stórsigurinn á ÍBV, 8-0, í dag. „Nei, alls ekki. ÍBV var vængbrotið lið og við gerðum okkur þetta auðveldara fyrir með því að skora strax í byrjun,“ sagði Þorsteinn eftir leik. Þrátt fyrir að sterka leikmenn vantaði í lið ÍBV var engin værukærð hjá Breiðabliki sem var 6-0 yfir í hálfleik. „Mér fannst við gera þetta virkilega vel, af öryggi og festu. Við bárum það mikla virðingu fyrir andstæðingnum að við spiluðum af fullum krafti allan tímann,“ sagði Þorsteinn. Hann kveðst sáttur með hvernig hans lið kemur undan landsleikjahléinu. „Jájá, þetta er í fínu lagi. Þótt andstæðingurinn hafi verið vængbrotinn spiluðum við heilt yfir vel.“ Á laugardaginn mætast Breiðablik og Valur í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. „Við byrjum að undirbúa leikinn á morgun. Við fögnum bara þremur stigum og svo byrjum við að einbeita okkur að leiknum á laugardaginn,“ sagði Þorsteinn. En hefði hann viljað fá meira krefjandi leik fyrir stórleikinn gegn Val? „Nei, alls ekki. Það skiptir í sjálfu sér ekki máli. Þetta er bara einn af þeim leikjum sem þarf að spila og einn leikur í þessu móti. Svo er það stærsti leikur sumarsins eins og staðan er í dag,“ svaraði Þorsteinn. Hann hlakkar til leiksins gegn Val. „Það eru ákveðin forréttindi að fá að taka þátt í svona leikjum. Það gefur þessu mikið, að vera í toppbaráttu, og það eru forréttindi að berjast um titla,“ sagði Þorsteinn að lokum.
Pepsi Max-deild kvenna Breiðablik Mest lesið „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Fótbolti „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Böl Börsunga í Belgíu Fótbolti Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Handbolti Dagskráin í dag: Blikar mæta Shakhtar Sport Uppgjörið: KR - Grindavík 68-85 | Gestirnir á toppinn Körfubolti Fleiri fréttir Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Sjá meira