Sprengja úr síðari heimsstyrjöld varð tveimur að bana Kjartan Kjartansson skrifar 21. september 2020 13:42 Frá Honiara, höfuðborg Salómonseyja. Vísir/Getty
Tveir sprengjusérfræðingar létust þegar sprengja frá síðari heimsstyrjöldinni sprakk á Salómanseyjum í Kyrrahafi í gær. Mennirnir tveir unnu að því að farga ósprungnum sprengjum á vegum norskra hjálparsamtaka. Sprengjan sprakk í íbúðarhverfi í Honiara, höfuðborg Salómanseyja, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Bretinn Stephen Atkinson og Ástralinn Trent Lee létust en þeir unnu báðir fyrir Aðstoð norsku þjóðarinnar (NPA). Samtökin segja að þeir hafi unnið að smíða gagnagrunns um sprengjuleifar úr síðari heimsstyrjöld en þúsundir ósprunginna sprengna eru sagðar á eyjunum. Harðir bardagar fóru fram á milli Japana og Bandaríkjamanna á Guadalcanal, eyjunni Honiara stendur á. Per Nergård, aðstoðarframkvæmdastjóri NPA, segir að um hörmulegt slys hafi verið að ræða. Rannsóknar sé þörf til að komast að því hvað leiddi til láts mannanna tveggja. AP-fréttastofan hefur eftir lögreglunni á Salómonseyjum að sprengjan hafi sprungið á skrifstofu hjálparsamtakanna í höfuðborginni. Rannsókn standi enn yfir en lögregla telji að mennirnir hafi verið með nokkrar ósprungnar sprengjur á skrifstofunni og hafi mögulega unnið að því að gera þær óvirkar. Unnið er að því að hreinsa upp sprengjuleifar í Honiara í aðdraganda Kyrrahafsleikanna sem stendur til að halda þar árið 2023.
Salómonseyjar Seinni heimsstyrjöldin Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Lítil bjartsýni á úrslitastundu Innlent Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormuz-sundi Erlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormuz-sundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Sjá meira