Sístrokubjörn fangaður eftir 42 daga á flótta Atli Ísleifsson skrifar 11. september 2020 10:24 Papillon, einnig þekktur sem M49, þegar hann var á flótta. Corpo Forestale dello Stato
42 dögum eftir að hafa strokið úr búri sínu í dýragarði sínu hefur veiðimönnum tekist að fanga skógarbjörninn Papillon í héraðinu Trento á Norður-Ítalíu. Björninn, sem er 149 kíló að þyngd og hefur einnig gengið undir einkennisnafninu M49, tókst að flýja úr búri sínu í Casteller-dýragarðinum, skammt fyrir utan bæinn Trento. Ástæða þess að honum var haldið í búri var að honum hafði áður tekist að flýja úr gerði sínu í garðinum. Hefur honum þannig verið lýst sem sá sem sé „efstur á lista yfir eftirlýsta birni Evrópu“. Papillon tókst að komast út úr gerðinu í Casteller-dýragarðinum á Norður-Ítalíu.Corpo Forestale dello Stato Þessir hæfileikar bjarnarins að strjúka hafa einnig orðið til þess að hann hefur verið kallaður Papillon og er það vísun í titil endurminningabókar rithöfundarins Henri Charriére þar sem hann sagði frá flótta úr fangelsi í Frönsku Gíneu. Bókin var kvikmynduð árið 1973. Papillon strauk fyrst um miðjan júlí 2019 og tókst ekki að hafa hendur í hári hans fyrr en 29. apríl á þessu ári, það er eftir níu mánaði á flótta. Þá hafði björnin prílað yfir þrjár rafmagnsgirðingar og fjögurra metra háan múr.
Ítalía Dýr Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Fleiri fréttir Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Sjá meira