Þynnka í vinnunni: Fimm góð ráð Rakel Sveinsdóttir skrifar 28. febrúar 2020 09:00 Í Bandaríkjunum viðurkenna 75% fólks að hafa einhvern tíman verið þunnir í vinnunni. Ekki er ólíklegt að einhverjir hér kannist við þannig daga. Vísir/Getty
Það eru nokkur atriði sem geta dregið úr þynnku. Til dæmis er sagt að hunang dragi úr einkennum timburmanna.Vísir/Getty Já ætli það sé ekki best að viðurkenna það: Þynnka í gangi og vinnuviku þó ekki lokið. Stundum kemur þetta jú fyrir. Til dæmis daginn eftir gleðskap vegna vinnunnar, afmælisfagnað í miðri viku eða eitthvað annað sem varð til þess að við slógum til og fengum okkur einn eða tvo. Í rannsókn sem gerð var í Bandaríkjunum viðurkenndu 75% starfsmanna að þeir hefðu einhvern tímann mætt þunnir til vinnu. Það er því ekki ólíklegt að einhverjir kannist við þetta hér. En lítum á nokkur góð ráð sem gætu gert daginn aðeins skárri. 1. Ætlar þú að mæta í vinnu? Þetta er fyrsta ákvörðunin sem þú þarft að taka í dag. Ein leið til að taka þessa ákvörðun er að fara fram úr og byrja að gera sig klára/n fyrir vinnuna. Ef þú ert ekkert farin að hressast um það leyti sem þú ætlar út um útidyrnar, skaltu staldra við og jafnvel hringja þig inn veikan. Áður en að þessari ákvörðun kemur, skulum við skoða aðeins næstu skref. 2. Sturtan og klæðnaður. Hér er mælt með því að svissa nokkrum sinnum á milli heita vatnsins og kalda vatnsins í sturtunni. Þetta kemur blóðrásinni af stað og hjálpar þér að vakna. Þegar það eru enn áfengisleifar í líkamanum Þá gefur lifrin frá sér hita og hormónarnir eru ekki í jafnvægi enda er líkaminn í óða önn að reyna að brjóta niður áfengisleifarnar sem enn eru til staðar. Það er því mælt með því að klæðast þægilegum fatnaði og forðast fatnað sem er líklegur til að mynda auðveldlega svitabletti. 3. Morgunmatur. Drekktu nægan vökva en ekki vanmeta það að borða líka trefjaríkan morgunmat. Þótt lystin sé ekki mikil kemur hafragrauturinn sterkur inn hér. Bláber á grautinn geta líka hjálpað til við að draga úr bólgum og bjúg sem margir upplifa daginn eftir. Kaffi getur virkað vel á hausverkinn en veldur líka ofþornun. Ef kaffiþambið er mikið þarf að passa vel að vatnsdrykkjan sé það líka. Hunang er sagt draga úr einkennum timburmanna. Í stað kaffis er mælt með að fá sér grænt te og bæta hunangi í það. Þá er mælt með því að taka eina panódil eða svo og eins vilja sumir meina að rautt gingseng virki vel. 4. Vinnuumhverfið. Svimi og hausverkur fyrir framan tölvuskjáinn er ekki í uppáhaldi hjá neinum á svona dögum. Hér er mælt með því að dempa liti á skjánum með því einfaldlega að stilla skjáinn yfir í svart/hvítan. Hér eru leiðbeiningar frá Microsoft. Lykt getur líka hresst þig við og þar er sérstaklega mælt með piparmintulykt eða lavender. Þetta gæti verið óvinsælt á meðal samstarfsfélaga en sumir vilja meina að það að bera piparmintu eða lavender olíu á magan og neðri hluta baksins geti hjálpað. 5. Dagur að kveldi kominn: Þú lifðir daginn af en... Það sem þessi dagur á að hafa kennt þér er að þig langar ekki að upplifa svona daga oft. Þess vegna er mælt með því að í lok dags skrifir þú niður þau fimm atriði sem þú vilt sérstaklega ná árangri í á þessu ári og geymir listann í veskinu. Næst þegar þú ert nálægt því að freistast of mikið í gleðina í miðri vinnuviku, lestu þá listann því hann mun minna þig á þennan dag og að svona dagar haldast ekki í hendur við framúrskarandi árangur og markmið ársins.
Áfengi og tóbak Tengdar fréttir Að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt Kaffi og orkudrykkir hættir að gera sitt gagn en dagurinn varla hálfnaður. Hvernig er best að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt? 28. janúar 2020 09:00 Stundum gott að vera latur í vinnunni Það eru kannski ekkert margir sem viðurkenna að þeir séu latir. Þó eflaust einhverjir sem sem viðurkenna að vera í stundum latir. Gleðitíðindinn fyrir þessa aðila eru: Það getur margborgað sig að vera stundum latur í vinnunni! 20. febrúar 2020 15:15 Vinnustaðapartí: Fyrirtæki velt fyrir sér að hætta að bjóða upp á áfengi Sú ,"brjálæðislega“ hugmynd hefur jafnvel komið upp hjá sumum fyrirtækjum að draga verulega úr eða láta alveg af því að bjóða upp á áfengi í vinnustaðapartíum segir Guðríður Sigríðardóttir ráðgjafi og einn eigandi Attendus. Þetta er í takt við það sem sjá má í umfjöllun erlendra miðla. 19. febrúar 2020 09:00 Mest lesið Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Neytendur Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Viðskipti erlent Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Atvinnulíf Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Neytendur Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Viðskipti erlent Fleiri fréttir Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ „Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Tvöfalt líf Ara: „Í fyrra túraði ég í sex vikur“ Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Eiginkonan kvartar undan fíflagangi á morgnana Að ná til baka tilfinningunni: Það er gaman í vinnunni Á mannamáli: „Ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn“ Góð ráð til að hvetja starfsfólk til dáða fyrir síðustu spretti ársins Að yfirstíga eitthvað rosalega vandræðalegt atvik Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Ný tækifæri: Til dæmis skór úr endurunnu sjávarplasti Að lifa af hræðilega þynnku í vinnunni Sjá meira
Að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt Kaffi og orkudrykkir hættir að gera sitt gagn en dagurinn varla hálfnaður. Hvernig er best að komast í gegnum vinnudaginn eftir svefnlausa nótt? 28. janúar 2020 09:00
Stundum gott að vera latur í vinnunni Það eru kannski ekkert margir sem viðurkenna að þeir séu latir. Þó eflaust einhverjir sem sem viðurkenna að vera í stundum latir. Gleðitíðindinn fyrir þessa aðila eru: Það getur margborgað sig að vera stundum latur í vinnunni! 20. febrúar 2020 15:15
Vinnustaðapartí: Fyrirtæki velt fyrir sér að hætta að bjóða upp á áfengi Sú ,"brjálæðislega“ hugmynd hefur jafnvel komið upp hjá sumum fyrirtækjum að draga verulega úr eða láta alveg af því að bjóða upp á áfengi í vinnustaðapartíum segir Guðríður Sigríðardóttir ráðgjafi og einn eigandi Attendus. Þetta er í takt við það sem sjá má í umfjöllun erlendra miðla. 19. febrúar 2020 09:00