Upplifun viðskiptavinar sem kemur inn í verslun getur verið gjörólík án þess að afgreiðslufólk segi nokkuð. Það skýrist einfaldlega af því að með líkamstjáningu segjum við oft meira en mörg orð. Það hvort við brosum, horfum í augun á viðskiptavininum eða stöndum annars hugar með krosslagða arma getur ráðið úrslitum með það hvort viðskiptavinur vill skoða vörurnar nánar eða versla á staðnum.
Á meðfylgjandi myndbandi frá fræðsluvefnum GCFGlobal er tekið einfalt dæmi um konu sem starfar við afgreiðslu þar sem bent er á nokkur lítil atriði sem geta skipt miklu máli fyrir upplifun viðskiptavina. Auðveldlega má yfirfæra þetta dæmi yfir á önnur störf en meginskilaboðin eru þessi:
- Það er gott fyrir okkur að vera meðvituð um það hvernig við tjáum okkur með líkamanum
- Gott er að velta fyrir sér hvort eitthvað í okkar fari sé hegðun sem við erum jafnvel ekki meðvituð um
- Horfum einnig á það hvernig samstarfsfélagar okkar tjá sig ómeðvitað með líkamshreyfingum og stöðu
- Æfum okkur í að breyta því sem við viljum breyta.