Aron flaug með Barcelona beint í 8-liða úrslit Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2020 17:48 Aron Pálmarsson er einu einvígi frá því að komast í Final Four í Köln. vísir/getty
Aron Pálmarsson var næstmarkahæstur hjá Barcelona þegar liðið tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag. Aron skoraði fimm mörk í 37-25 útisigri á Celje Lasko í dag og þar með er Barcelona með fjögurra stiga forskot á PSG og Pick Szeged þegar aðeins ein umferð er eftir í A-riðli keppninnar, og því öruggt um efsta sætið. Efsta liðið fer rakleitt í 8-liða úrslit en liðin í 2.-6. sæti komast í 16-liða úrslit. Aron og félagar spila því ekki aftur leik í Meistaradeildinni fyrr en 25.-26. apríl, en 16-liða úrslitin fara fram í seinni hluta mars. Félagar Arons úr íslenska landsliðinu voru á ferð í þýsku 1. deildinni í dag. Arnór Þór Gunnarsson skoraði tvö mörk í sætum sigri Bergischer gegn sterku liði Hannover, 28-27, og Viggó Kristjánsson skoraði þrjú mörk fyrir Wetzlar sem tapaði fyrir Flensburg, 31-28. Elvar Ásgeirsson var ekki á meðal markaskorara Stuttgart sem vann Göppingen, 29-26. Kiel er á toppi þýsku deildarinnar með 40 stig, tveimur stigum á undan Flensburg og sex stigum á undan Füchse Berlín og Hannover. Bergischer er í 12. sæti með 19 stig líkt og Stuttgart sem er í 13. sæti, en Wetzlar er í 8. sæti með 25 stig.
Spænski handboltinn Þýski handboltinn Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Sjá meira