Tíundi sigur Fram í röð | KA/Þór fór illa með Aftureldingu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. febrúar 2020 18:00 Ásdís Guðmundsdóttir skoraði átta mörk í liði KA/Þór í dag. Vísir/KA
Fram vann Hauka að Ásvöllum með sex marka mun í dag, 28-22. Þá vann KA/Þór 18 marka sigur á botnliði Olís deildar kvenna Aftureldingu í dag. Lokatölur á Akureyri 30-12.Þægilegt hjá Fram á Ásvöllum Framstúlkur voru með yfirhöndina nær allan leikinn í dag. Þær náðu sex marka forystu í fyrri hálfleik og staðan 16-10 í hálfleik. Gestirnir úr Safamýri náðu mest níu marka forystu í síðari hálfleik en unnu á endanum sex marka sigur. Lokatölur 28-22 og Fram því komið með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar. Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði sjö mörk fyrir Fram í leiknum og Þórey Rósa Stefánsdóttir sex. Hjá Haukum var Berta Rut Harðardóttir markahæst með fimm mörk. Haukar eru í 5. sæti deildarinnar sem stendur.Afturelding átti aldrei möguleika Heimastúlkur voru fljótlega komnar með sex marka forystu. Sú forysta var orðin 12 mörk í hálfleik, staðan þá 18-6. Í þeim síðari var sama upp á teningnum en KA/Þór hafði öll völd á vellinum. Fór það svo að þær unnu einkar öruggan 18 marka sigur í dag, lokatölur 30-12. Rakel Sara Elvarsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir skoruðu átta mörk hvor fyrir KA/Þór og þá varði Matea Lonac 19 skot í markinu. Hjá Aftureldingu voru Anamaria Gugic og Katrín Helga Davíðsdóttir með þrjú mörk hvor. KA/Þór er í 6. sæti deildarinnar með 10 stig en Afturelding situr sem fastast á botninum án stiga.
Íslenski handboltinn Olís-deild kvenna Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Körfubolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Fleiri fréttir Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Sjá meira