Hjóla- og gönguleiðir í Reykjavík komnar með nöfn Atli Ísleifsson skrifar 23. janúar 2020 14:09 Lykilstígarnir sem um ræðir.
Skipulags- og samgönguráð hefur samþykkt tillögu nafnanefndar um nöfn á reiðhjóla- og göngustígum í Reykjavík, eða svokölluðum lykilstígum. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að lykilstígarnir séu sex talsins og nefnast þeir Mánaleið, Sólarleið, Árleið, Kelduleið, Eyjaleið og Bæjarleið. „a) Mánaleið nefnist stígurinn meðfram Sæbraut. b) Sólarleið – stígurinn sem liggur meðfram Ægisíðu í gegnum Fossvog, inn í Elliðaárdal. c) Árleið – stígurinn í gegnum Elliðaárdal. d) Kelduleið – stígurinn sem liggur meðfram Sæbraut, í gegnum Geirsnef og svo Vesturlandsveg inn í Mosfellsbæ. e) Eyjaleið – stígurinn sem liggur frá Bryggjuhverfi, í gegnum Grafarvoginn inn í Mosfellsbæ meðfram sjónum. f) Bæjarleið – stígurinn frá Nauthólsvík, meðfram Öskjuhlíð og niður í miðbæ Reykjavíkur. Ketilshólmi.Reykjavíkurborg Ketilshólmi Enn fermur var samþykkt að nefna hólmann í Úlfarsá við Grænlandsleið, Ketilshólma. Tilurð nafnsins er sú að Hólmfríður Larsen, sendi tölvupóst til Reykjavíkurborgar, þar sem hún lagði til að „eyjan“ úti í ánni fengi nafnið Ketilsey eftir föður sínum Katli Larsen. Ketill bjó að Engi við Vesturlandsveg og ræktaði upp „eyjuna“ og þótti afskaplega vænt um hana. Þar sem heitið Ketilsey er nú þegar til á Breiðafirði var samþykkt að hólminn fengi nafnið Ketilshólmi,“ segir í tilkynningunni. Nafnanefnd skipuðu þau Ármann Jakobsson, prófessor í íslensku, Guðrún Kvaran prófessor í íslensku, Ásrún Kristjánsdóttir, listamaður og Nikulás Úlfar Másson, byggingarfulltrúi sem jafnframt var formaður nefndarinnar.
Hjólreiðar Reykjavík Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira